Valur vann öruggan sigur á KR á Hlíðarenda í kvöld. Valsmenn komust yfir snemma leiks þegar Kristinn Freyr Sigurðsson skoraði eftir sendingu frá Patrick Pedersen.
KR fékk umdeilda vítaspyrnu þegar Jóhannes Kristinn Bjarnason féll í teignum. Hann tók spyrnuna sjálfur og skoraði og jafnaði metin.
KR fékk umdeilda vítaspyrnu þegar Jóhannes Kristinn Bjarnason féll í teignum. Hann tók spyrnuna sjálfur og skoraði og jafnaði metin.
Strax í kjölfarið náðu Valsmenn aftur forystunni. Tómas Bent Magnússon skoraði með skoti rétt fyrir utan teiginn. Valur var ekki búið að segja sitt síðasta í fyrri hálfeiknum því Orri Sigurður Ómarsson skoraði þriðja mark liðsins.
Á 70. mínútur komst Patrick í gegn en var óeigingjarn og setti boltann á Tryggva Hrafn Haraldsson sem skoraði. Dæmið snerist síðan við stuttu síðar og Tryggvi lagði upp fimmta mark leiksins á Patrick.
Lúkas Logi Heimisson negldi síðan síðasta naglann í kistu KR í uppbótatíma.
Breiðablik fékk Fram í heimsókn á Kópavogsvöll en bæði lið sóttu í fyrri hálfleik en tókst ekki að koma boltanum í netið. Snemma í seinni hálfleik skoraði Vuk Oskar Dimitrijevic fyrir fram eftir sendingu frá Kennie Chopart.
Fram fékk tækifæri til að bæta við mörkum strax í kjölfarið en allt kom fyrir ekki. Valgeir Valgeirsson var nálægt því að jafna metin þegar hann átti skot en boltinn small í slá.
Undir lok leiksins fékk Breiðablik vítaspyrnu. Það var mikill darraðadans inn á teignum þar sem Blikar áttu tvær tilraunir sem fóru ótrúlegt en satt ekki á markið. Israel Garcia braut síðan á Ágústi Orra Þorsteinssyni og vítaspyrna dæmd.
Fyrirliðinn Höskuldur Gunnlaugsson tók spyrnuna og skoraði og jafnaði metin. Í kjölfarið réðst Höskuldur að Viktori markmanni Fram og það braust út mikill hasar. Höskuldur og Kyle McLagan fengu að líta rauða spjaldið. Fleiri mörk urðu ekki skoruð og jafntefli niðurstaðan.
Valur stekkur upp í 3. sæti deildarinnar með 21 stig, tveimur stigum á eftir Breiðabliki en Blikarnir eru nú þremur stigum á eftir toppliði Víkings. Fram er áfram í 6. sæti nú með 16 stig, stigi á eftir Vestra en KR er í 10. sæti með 13 stig.
Valur 6 - 1 KR
1-0 Kristinn Freyr Sigurðsson ('6 )
1-1 Jóhannes Kristinn Bjarnason ('27 , víti)
2-1 Tómas Bent Magnússon ('28 )
3-1 Orri Sigurður Ómarsson ('44 )
4-1 Tryggvi Hrafn Haraldsson ('70 )
5-1 Patrick Pedersen ('75 )
6-1 Lúkas Logi Heimisson ('95 )
Lestu um leikinn
Breiðablik 1 - 1 Fram
0-1 Vuk Oskar Dimitrijevic ('49 )
1-1 Höskuldur Gunnlaugsson ('91 , víti)
Lestu um leikinn
Besta-deild karla
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Víkingur R. | 12 | 8 | 2 | 2 | 24 - 13 | +11 | 26 |
2. Breiðablik | 12 | 7 | 2 | 3 | 20 - 17 | +3 | 23 |
3. Valur | 12 | 6 | 3 | 3 | 30 - 17 | +13 | 21 |
4. Stjarnan | 12 | 6 | 2 | 4 | 23 - 20 | +3 | 20 |
5. Vestri | 12 | 6 | 1 | 5 | 13 - 9 | +4 | 19 |
6. Afturelding | 12 | 5 | 2 | 5 | 14 - 15 | -1 | 17 |
7. Fram | 12 | 5 | 1 | 6 | 19 - 18 | +1 | 16 |
8. FH | 12 | 4 | 2 | 6 | 17 - 16 | +1 | 14 |
9. ÍBV | 12 | 4 | 2 | 6 | 13 - 19 | -6 | 14 |
10. KR | 12 | 3 | 4 | 5 | 31 - 32 | -1 | 13 |
11. KA | 12 | 3 | 3 | 6 | 10 - 20 | -10 | 12 |
12. ÍA | 12 | 3 | 0 | 9 | 13 - 31 | -18 | 9 |
Athugasemdir