25.10.26 - 14:00
Brynjar Ingi Erluson
Ísak Andri meistari með Norrköping

Ísak Andri er B-deildarmeistari með Norrköping

Mynd: Guðmundur Svansson

Ísak Andri Sigurgeirsson og félagar hans í Norrköping eru orðnir B-deildarmeistarar í Svíþjóð eftir að hafa tryggt sér titilinn með 4-0 sigri á Norrby í dag.
Norrköping féll úr sænsku úrvalsdeildinni á síðasta ári en hefur nú tryggt sér sæti í deild þeirra bestu á nýjan leik.
Ísak Andri var ekki með Norrköping í dag þegar liðið tryggði sér deildarmeistaratitilinn.
Hann hefur lítið fengið að spila síðan hann sneri aftur til félagsins eftir lánsdvöl hjá Viborg og verður fróðlegt að sjá hvort hann leiti annað eftir tímabilið.
Bjarni Mark Antonsson og Oskar Sverrisson voru báðir í byrjunarliði Trelleborg sem fagnaði 3-1 sigri á Atvidaberg í suðurriðli C-deildarinnar.
Trelleborg hafði þegar tryggt sér efsta sætið í riðlinum og þar með sæti í B-deildinni á næsta tímabili.
Ágúst Orri Þorsteinsson kom inn af bekknum hjá Excelsior sem tapaði 1-0 fyrir Fortuna Sittard í hollensku úrvalsdeildinni. Excelsior situr í 12. sæti með ellefu stig.
Óttar Magnús Karlsson kom einnig inn af bekknum þegar Renate gerði markalaust jafntefli við AlbinoLeffe í ítölsku C-deildinni. Renate situr á botni deildarinnar með aðeins fimm stig.
Óttar skoraði þrettán mörk fyrir Renate á síðustu leiktíð en hefur aðeins náð að skora eitt mark það sem af er þessu tímabili.