Fotbolti.net
25.10.26 - 14:23
Brynjar Ingi Erluson

Ásdís Karen frábær í sigri AIK

Ásdís Karen skoraði og lagði upp

Ásdís Karen skoraði og lagði upp

Canon

Mynd: AIK

Kvennaboltinn
Ásdís Karen Halldórsdóttir var allt í öllu hjá AIK þegar liðið lagði Rosengård að velli, 2-0, í sænsku úrvalsdeildinni í dag.
Hún kom AIK yfir á 18. mínútu leiksins áður en hún lagði upp annað mark liðsins fyrir Dajan Hashemi undir lokin.

Þetta var annað deildarmark hennar á tímabilinu og jafnframt fyrsta stoðsendingin.

Ásdís gekk til liðs við AIK frá portúgalska félaginu Braga í sumar, en áður hafði hún leikið með Madrid CFF, Lilleström, Val og KR.

Með sigrinum fer AIK upp fyrir Kristianstad og í fjórða sæti deildarinnar með 37 stig, en Rosengård situr í ellefta sæti með 23 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.