Man Utd gæti keypt McTominay til baka - Man Utd hrifið af Sangare - Real Madrid með augun á Van de Ven
   þri 24. febrúar 2026 21:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Meistaradeildin: Úrslit sem fara í sögubækurnar
Úr leiknum í kvöld.
Úr leiknum í kvöld.
Mynd: EPA
Norska ævintýrið heldur áfram.
Norska ævintýrið heldur áfram.
Mynd: EPA
Newcastle fór illa með Qarabag frá Aserbaídsjan.
Newcastle fór illa með Qarabag frá Aserbaídsjan.
Mynd: EPA
Ein ótrúlegustu úrslit í sögu Meistaradeildarinnar áttu sér stað í kvöld þegar Bodö/Glimt frá Noregi sló ítalska stórliðið Inter úr leik í keppninni. Inter, sem komst í úrslitaleikinn á síðasta tímabili, kemst ekki í 16-liða úrslitin þetta árið.

Bodö/Glimt lét sér það ekki nægja að vinna fyrri leikinn heima fyrir, þeir unnu líka bara í kvöld á San Siro.


Inter stjórnaði ferðinni í leiknum án þess þó að skapa sér mikið af góðum færum. Staðan var markalaus í hálfleik og það voru gestirnir frá Noregi ánægðir með.

Þeir urðu enn ánægðari þegar Manuel Akanji, varnarmaður Inter, ákvað að gefa þeim mark á 58. mínútu. Akanji var að bera boltann úr vörninni og ætlaði að gefa hann svo til baka, en þar var enginn nema leikmaður Bodö. Yann Sommer varði fyrstu skottilraunina en Jens Petter Hauge náði frákastinu og skoraði.

Hakon Evjen bætti svo við marki fyrir Bodö með góðu skoti og öll von í raun úti hjá Inter. Alessandro Bastoni minnkaði muninn en lengra komst Inter ekki og þeir eru úr leik.

Norska ævintýrið heldur áfram, Bodö/Glimt verður í hattinum þegar dregið verður í 16-liða úrslit. Hver hefði búist við því? Klárlega úrslit sem fara í sögubækurnar og verði lengi í minnum höfð.

Leverkusen og Newcastle einnig áfram
Fyrr í kvöld komst Atletico Madrid áfram gegn Club Brugge og fara Bayer Leverkusen og Newcastle einnig áfram ásamt Bodö/Glimt eftir leiki kvöldsins.

Það var markaveisla í einvígi Newcastle og Qarabag frá Aserbaídsjan en enska liðið vann það einvígi 9-3 samanlagt. Leikurinn í kvöld endaði með 3-2 sigri Newcastle sem gat leyft sér að hvíla nokkra leikmenn.

Þá var leikur Bayer Leverkusen og Olympiakos mjög svo tíðindalítill. Leverkusen fór inn í leikinn með þægilega stöðu og kláraði einvígið.

Á morgun klárast umspilið og þá verður ljóst hvaða 16-lið keppa um Meistaradeildartitilinn.

Bayer 0 - 0 Olympiakos (2-0)

Inter 1 - 2 Bodo-Glimt (2-5)
0-1 Jens Hauge ('58 )
0-2 Hakon Evjen ('72 )
1-2 Alessandro Bastoni ('76 )

Newcastle 3 - 2 Qarabag (9-3)
1-0 Sandro Tonali ('4 )
2-0 Joelinton ('6 )
2-1 Camilo Duran ('51 )
3-1 Sven Botman ('52 )
3-2 Elvin Cafarquliyev ('57 )
3-2 Marko Jankovic ('57 , Misnotað víti)
Athugasemdir
banner
banner