Bruno sagður falur fyrir 60 milljónir punda - Sancho aftur til Dortmund - Zidane tekur við Frökkum - De Zerbi til Spurs
   þri 24. mars 2026 19:58
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mismunandi skoðanir á Jesse Marsch innan veggja KSÍ
Eimskip
Jesse Marsch.
Jesse Marsch.
Mynd: EPA
Máni er mikill stuðningsmaður Leeds.
Máni er mikill stuðningsmaður Leeds.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það eru mismunandi skoðanir um Jesse Marsch, landsliðsþjálfara Kanada, innan veggja KSÍ. Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson er aðdáandi á meðan Máni Pétursson, stjórnarmaður KSÍ, heldur ekki mikið upp á þjálfarann eftir tíma hans hjá Leeds.

Íslenska karlalandsliðið spilar vináttulandsleik við Kanada í Toronto seinna í þessari viku. Kanada mun halda HM í sumar ásamt Bandaríkjunum og Mexíkó og má búast við mikilli stemningu á vellinum þegar Íslendingar mæta í heimsókn.

„Ég er búinn að fylgjast vel með hans ferli frá því hann var með Red Bull Salzburg," sagði Arnar, landsliðsþjálfari, í viðtali á dögunum.

„Þú veist hvað þú færð. Hans leikstíll er mjög flottur og sérstakur. Þú sérð strax að þetta er Jesse Marsch lið. Þeir pressa hátt og eru mjög agressívir."

Ekki í boði að tapa fyrir Jesse
Marsch er 52 ára gamall Bandaríkjamaður sem hefur stýrt Montreal Impact, New York Red Bulls, Red Bull Salzburg og jú Leeds ásamt kanadíska landsliðinu. Hann stýrði Leeds frá 2022 til 2023 og náði að bjarga liðinu frá falli á fyrra tímabilinu sínu með dramatískum hætti. Á seinna tímabilinu hans gekk lítið upp og var hann rekinn í febrúar áður en Leeds svo féll.

Máni, sem er einn mesti stuðningsmaður Leeds á Íslandi, segir að það sé ekki í boði að tapa fyrir liði sem stýrt er af Jesse Marsch.

„Kanada er fínt lið. En líklega með lélegasta þjálfara allra tíma," segir Máni á X-reikningi sínum í kvöld. Hann lét ekki staðar numið þar og hélt áfram:

„Vitlausasti hlaðvarpsspekingur Íslands veit meira um fótbolta en Jesse Marsch. Að tapa fyrir Jesse er eins og að tapa fyrir San Marínó. Einfaldlega ekki í boði."

Ísland mætir Kanada í Toronto þann 28. mars og mun Máni væntanlega fylgjast grannt með gangi mála þar.


Arnar: Þurfum að taka doktorsprófið í að verða alvöru lið
Athugasemdir
banner