Fotbolti.net
24.06.25 - 19:00
Ívan Guðjón Baldursson

Barcola ekki til sölu

Barcola ekki til sölu
Canon

Mynd: EPA

Franska stórveldið Paris Saint-Germain hefur engan áhuga á að selja kantmanninn eftirsótta Bradley Barcola þrátt fyrir mikla samkeppni um byrjunarliðssæti.
Barcola er í harðri baráttu við Khvicha Kvaratskhelia, Ousmane Dembélé og Désiré Doué um sæti á köntunum hjá PSG. Það hefur vakið áhuga margra stórliða, en PSG neitar að selja.

Arsenal og FC Bayern eru í leit að kantmanni og hafa verið sterklega orðuð við Barcola, en fá ekki að kaupa hann. PSG lítur á leikmanninn sem ósnertanlegan.

Barcola, sem verður 23 ára í september, er með þrjú ár eftir af samningi sínum við PSG. Hann kom að 40 mörkum í 58 leikjum á síðustu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.