Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 24. júlí 2021 21:05
Victor Pálsson
Staðfestir að Ronaldo verði áfram hjá Juventus
Mynd: Getty Images
Pavel Nedved, varaforseti Juventus, hefur staðfest það að Cristiano Ronaldo sé ekki á förum frá félaginu í sumar.

Það er oft orðrómur í gangi um að Ronaldo sé á förum og er hann orðaður við fyrrum félög sín Manchester United og Real Madrid.

„Cristiano Ronaldo kemur aftur á mánudaginn og verður áfram hjá okkur," sagði Nedved við Sky Sports.

Ronaldo hefur verið í sumarfríi en hann spilaði með portúgalska landsliðinu á EM í sumar.

Síðasta tímabil var ansi slæmt í augum stuðningsmanna Juventus en liðið tapaði deildarmeistaratitlinum til Inter.

Ronaldo er 36 ára gamall og hefur skorað 81 deildarmark í 97 leikjum á Ítalíu.
Athugasemdir
banner
banner
banner