Skorað bestu mörkin sín í Kópavogi - Fékk harða gagnrýni fyrir þremur árum

'Það var svo mjög gaman að geta klárað þetta svona'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markið var annað mark Sveins fyrir Víking en hann hafði sömuleiðis skorað þrjú mörk fyrir KA fyrri part sumars.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Markið síðasta föstudag er samt í uppáhaldi'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Þá ákváðum við að það væri best að skjóta beint fyrst þetta var svona opið'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Það var svo mjög gaman að geta klárað þetta svona'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, sagði við Sýn eftir leikinn að Víkingur hefði unnið á „Ronaldo" aukaspyrnu. Markið má sjá hér neðst í fréttinni.
„Ég get ekki sagt að ég hafi oft gert þetta í leik. Ég hafði verið að æfa þessar spyrnur aðeins lengra frá þegar ég var í KA og gekk vel á æfingum. Ég tók svo eina á svipuðum stað með KA gegn KR árið 2023, man svo vel eftir því af því ég dúndraði boltanum lengst yfir í Vaðlaheiði og það kom frétt um það hvað spyrnan hafi verið léleg," segir Sveinn Margeir og vísar þar í gagnrýni Lárusar Orra Sigurðssonar í Stúkunni. Hann segir extra sætt að þessi spyrna hafi endaði í netinu eftir gagnrýnina sem hann fékk á sínum tíma.
„Eftir það hef ég látið það aðeins vera að biðja um að fá að taka spyrnur á þessum stað. Mér leið vel í leiknum og ég spurði hvort ég ætti ekki að láta vaða og er bara glaður að þetta kom svona vel út."
„Fyrst vorum við að ræða málin, hvernig við ættum að útfæra spyrnuna. Við ákváðum að taka einhverja smá brellu, ætluðum að leggja boltann út og ég kæmi á ferðinni. Blikarnir voru búnir að lesa það í veggnum, fækkuðu í honum og það var bara einn eftir. Þá ákváðum við að það væri best að skjóta beint fyrst þetta var svona opið."
Hjálpar það skotmanni að það sé bara einn í veggnum?
„Ef ég er að skjóta svona þá já, klárlega. Annars færi þetta beint í vegginn held ég, boltinn má ekki fara hátt. Ef maður væri nær þá myndi hjálpa að vera með vegginn, upp á markmanninn að gera."
Er þetta flottasta markið á ferlinum?
„Örugglega já. Annað mark sem stendur upp úr er mark gegn ÍA með KA í sumar, það var á svipuðum stað en þá var boltinn í leik og á ferð, það er ekki alveg jafn spennandi. Svo er það fyrsta markið með KA, gegn einmitt Blikum á Kópavogsvelli 2020, það er sterkt í minningarbankanum. Fjórða væri svo mark gegn Leikni '22. Markið síðasta föstudag er samt í uppáhaldi."
Þjálfarinn þinn, Sölvi Geir, sagði í viðtali eftir leikinn að þú hefðir verið öflugur á skotæfingu fyrir leik, fannstu að þú varst í fínum gír?
„Já og nei. Við skjótum eftir flestar æfingar, tökum einhverja keppni. Það gefur manni alltaf sjálfstraust þegar maður vinnur eitthvað svoleiðis," segir Sveinn Margeir.
Aukaspyrnumarkið í síðustu viku
Hér má sjá markið frá árinu 2020
Markið gegn ÍA fyrr í sumar

Markið var annað mark Sveins fyrir Víking en hann hafði sömuleiðis skorað þrjú mörk fyrir KA fyrri part sumars.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Markið síðasta föstudag er samt í uppáhaldi'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Þá ákváðum við að það væri best að skjóta beint fyrst þetta var svona opið'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
