Fotbolti.net
23.10.26 - 21:48
Sóldís Erla

Gylfi: Flest allir spáðu okkur lóðbeint niður

Auglýsing
Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/Njarðvík

Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/Njarðvík

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/Njarðvík átti gott tímabil í ár þar sem liðið endar í 5.sæti eftir fyrsta árið sitt í deild þeirra bestu.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 3 - 2 Grindavík/Njarðvík
Grindavík/Njarðvík tapaði 3-2 í leik á móti Þrótti fyrr í kvöld.

„Leikurinn var ekki nógu góður, manni er svona drullu sama um það en samt einhvern veginn ekki. Hefði viljað spila betur í dag."

Grindavík/Njarðvík eru nýliðar í deild þeirra bestu en afrekuðu heldur betur stóra hluti á árinu.

„Tímabilið hefur heilt yfir verið alveg frábært fyrir okkur. Ég er búinn að rannsaka þetta tímabil útfrá allskonar þáttum. Tölfræðin segir að við séum held ég fjórða besta liðið á landinu í dag og stöðutaflan samsvarar því, við erum top 5 lið á landinu sem er alveg ótrúlegt. Við erum að fá unga leikmenn í liðið sem fá að blómstra. Ég ætla að halda því fram að hver einasti ungi leikmaður á 2.flokks aldri eða yngri sem hefur komið í liðið okkar hefur fengið að blómstra og spilað líklega sinn besta fótbolta á ferlinum. Það eru allskonar punktar sem maður horfir í þegar maður er að gera upp tímabilið ,sem að stuðningsmenn sem ekki endilega komast á alla leiki en hlusta á umræðuna geta verið stoltir af."

Gylfi vildi einnig óska Breiðablik til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.