Fjórir leikmenn Palmas í brasilísku D-deidlinni létu lífið í flugslysi norðan við Tocantins í gær.
Forseti Palmas og flugmaður vélarinnar létu einnig lífið í slysinu.
Slysið átti sér stað þegar flugvélin var að taka á loft en hún hrapaði strax til jarðar.
Forseti Palmas og flugmaður vélarinnar létu einnig lífið í slysinu.
Slysið átti sér stað þegar flugvélin var að taka á loft en hún hrapaði strax til jarðar.
Leikmennirnir sem um ræðir eru Lucas Praxedes, Guilherme Noe, Ranule og Marcus Molina.
Þeir ferðuðust ekki með stærstum hluta leikmannahópsins því þeir höfðu greinst með Covid-19 og voru á lokadegi í sóttkví.
Leikmennirnir voru á leið til Goiania í leik gegn Vila Nova.
Athugasemdir