Fotbolti.net
25.02.24 - 12:40
Aksentije Milisic

Byrjunarlið Wolves og Sheffield: Fjórar breytingar og markmannsskipting

Chris Wilder.

Chris Wilder.

Canon

Mynd: Getty Images

Það er einn leikur á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í dag en þá mætast Wolves og Sheffield United á Molineux leikvangnum.

Wolves siglir lignan sjó um miðja deild en liðið vann frábæran sigur á Tottenham í síðustu umferð á meðan Sheffield steinlá gegn Brighton. Sheffield er í neðsta sæti deildarinnar með einungis þrettán stig.

Það er engin breyting á liði Wolves frá sigrinum á Tottenham Hotspur leikvangnum.

Chris Wilder, stjóri Sheffield, gerir alls fjórar breytingar á sínu liði og þar á meðal markmannsskiptingu.

Ivo Grbic kemur aftur í búrið en hann hefur misst af síðustu þremur leikjum liðsins. Wes Foderingham fer á bekkinn.

Auston Trusty kemur inn fyrir Mason Holgate sem er í banni á meðan Oliver Norwood og Rhian Brewster koma í liðið fyrir Ben Osborn og William Osula.

Wolves: Sa, Semedo, Kilman, Dawson, Toti, Ait-Nouri, M Lemina, Gomes, Neto, Hwang, Sarabia.
(Varamenn: Bentley, Doherty, S Bueno, Traore, H Bueno, Doyle, Bellegarde, Chirewa, Fraser.)

Sheffield: Grbic, Bogle, Trusty, Ahmedhodzic, Robinson, Larouci, McAtee, Norwood, Souza, Bewster, Hamer.
(Varamenn: Foderingham, McBurnie, Davies, Osborn, Arblaster, Curtis, Osula, Brooks, Sasnauskas.)

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.