Napoli heillar Nunez - Barcelona gæti reynt við Rashford - Fenerbahce hefur áhuga á Sancho
   mið 25. júní 2025 19:05
Brynjar Ingi Erluson
Fótbolti.net bikarinn: Glæsileg endurkoma Hattar/Hugins
Þórhallur Ási kom Hetti/Hugin aftur inn í leikinn með tveimur mörkum
Þórhallur Ási kom Hetti/Hugin aftur inn í leikinn með tveimur mörkum
Mynd: Höttur/Huginn
Höttur/Huginn 4 - 2 KÁ
0-1 Bjarki Sigurjónsson
0-2 Birkir Bóas Davíðsson
1-2 Þórhallur Ási Aðalsteinsson (víti)
2-2 Þórhallur Ási Aðalsteinsson
3-2 Bjarki Fannar Helgason
4-2 Kristófer Páll Viðarsson

Höttur/Huginn er komið í 16-liða úrslit Fótbolta.net bikarsins eftir magnaðan 4-2 endurkomusigur á KÁ á Fellavelli í dag.

KÁ, sem leikur í 4. deild, komst í tveggja marka forystu gegn 2. deildarliði Hattar/Hugins.

Bjarki Sigurjónsson, fyrirliði KÁ, sá til þess að liðið færi með 1-0 forystu inn í hálfleikinn og bætti Birkir Bóas Davíðsson við öðru snemma í þeim síðari.

Það var Þórhallur Ási Aðalsteinsson sem hóf endurkomu Hattar/Hugins. Hann minnkaði muninn með marki úr vítaspyrnu áður en hann jafnaði metin um það bil tuttugu mínútum síðar.

Undir lok leiks skoruðu varamennirnir Bjarki Fannar Helgason og Kristófer Páll Viðarsson til að fleyta heimamönnum áfram í 16-liða úrslitin.
Athugasemdir
banner
banner