Álftanes og Grótta tryggðu sér sæti í 16-liða úrslitum Fótbolti.net bikarsins í kvöld.
Álftanes vann KF, 1-0, á Ólafsfjarðarvelli en eina markið gerði fyrirliðinn Bjarki Flóvent Ásgeirsson með stórglæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu í fyrri hálfleik.
Það vakti athygli að tveir leikmenn fæddir 2010 voru í hópnum hjá KF og einn þeirra í byrjunarliðinu. Elís Beck Kristófersson byrjaði leikinn og þá var Sebastian Amor Óskarsson á bekknum.
Grótta vann þá Dalvík/Reyni, 2-1, á Vivaldi-vellinum á Seltjarnarnesi, en sá leikur var í beinni textalýsingu á Fótbolti.net.
Dalvíkingar höfðu átt hættulegasta færi leiksins á 26. mínútu er Tómas Þórðarson skaut boltanum úr teignum en Alexander Arnarsson varði það og fjórum mínútum síðar kom Björgvin Brimi Andrésson heimamönnum í forystu.
Hann gerði vel fyrir utan vítateig gestanna og skaut boltanum sem fór af varnarmanni og í netið.
Hálftíma fyrir leikslok tvöfölduðu Gróttumenn forystuna úr vítaspyrnu. Marciano Aziz öruggur á punktinum.
Dalvík/Reynir tókst að minnka muninn með laglegu sporðdrekasparki en það kom of seint og lokatölur því 2-1.
Álftanes og Grótta komin með farseðil inn í 16-liða úrslitin en Dalvík/Reynir og KF úr leik.
Úrslit og markaskorarar:
KF 0 - 1 Álftanes
0-1 Bjarki Flóvent Ásgeirsson
Grótta 2 - 1 Dalvík/Reynir
1-0 Björgvin Brimi Andrésson ('30 )
2-0 Marciano Aziz ('60 , víti)
2-1 Þröstur Mikael Jónasson ('93 )
Lestu um leikinn
Athugasemdir