Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 26. mars 2023 14:21
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið U21: Sex verið í Breiðabliki
Eyþór Aron Wöhler er í byrjunarliðinu
Eyþór Aron Wöhler er í byrjunarliðinu
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Íslenska landsliðið skipað leikmönnum 21 árs og yngri mætir því írska í æfingaleik á Írlandi kl. 15.


Byrjunarlið Íslands er komið í hús en það má sjá hér fyrir neðan. Þar eru margir leikmenn í íslenskum liðum Eyþór Aron Wöhler og Anton Logi Lúðvíksson (Breiðablik), Danijel Dejan Djuric (Víkingur), Ólafur Guðmundsson (FH) og Jakob Franz Pálsson (KR/Á láni frá Venezia).

Sex leikmenn í byrjunarliðinu hafa leikið með Breiðabliki þar á meðal Róbert Orri Þorkelsson sem ber fyrirliðabandið.

Ísland og Írland hafa mæst fimm sinnum í þessum aldursflokki. Ísland hefur unnið fjóra af þeim leikjum og Írland einn. Síðasti leikur liðanna endaði með 2-1 sigri Íslands á Írlandi í nóvember 2020.

Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu hér. Frítt er að horfa á leikinn, en það verður að búa til aðgang á vefsíðu sjónvarpsstöðvar írska knattspyrnusambandsins.


Athugasemdir
banner
banner
banner