Fotbolti.net
26.03.26 - 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Umspilið fyrir HM í dag - Stuðningsmenn Heimis og Írlands hittast á Ölveri

Kemst Heimir áfram?

Kemst Heimir áfram?

Canon

Mynd: EPA

Umspilið fyrir HM í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó hefst í kvöld. Undanúrslitaleikirnir verða þá spilaðir.

Heimir Hallgrímsson og lærisveinar í Írlandi spila í Tékklandi klukkan 19:45 en ef þeir vinna þar þá mæta þeir annað hvort Danmörku eða Norður-Makedóníu í hreinum úrslitaleik um sæti á mótinu.

Stuðningsmenn Heimis og Írlands ætla að hittast á Ölveri í Glæsibæ í kvöld og horfa á leikinn. Tilboð verður á írskum drykkjum og er von á góðum hópi Eyjamanna á staðinn.
Ítalía er þá á meðal liða sem verða í eldlínunni í kvöld en alla leikina má sjá hér fyrir neðan.

fimmtudagur 26. mars
17:00 Tyrkland - Rúmenía
19:45 Tékkland - Írland
19:45 Danmörk - Norður Makedónía
19:45 Ítalía - Norður Írland
19:45 Pólland - Albanía
19:45 Slóvakía - Kósóvó
19:45 Úkraína - Svíþjóð
19:45 Wales - Bosnía
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.