Heimir Hallgrímsson og lærisveinar hans í írska landsliðinu fara ekki á HM í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar en þetta varð ljóst eftir grátlegt tap gegn Tékklandi í vítakeppni í Prag. Wales fer með Tékkum áfram eftir að hafa unnið Bosníu og Hersegóvínu í vítakeppni.
Írarnir komu vel stemmdir til leiks gegn Tékkum eftir að hafa átt frábæran glugga í nóvember þar sem liðið komst í umspilið eftir ótrúlega frammistöðu gegn Portúgal og Ungverjalandi.
Hetjan í þeim glugga, Troy Parrott, var einmitt sá sem kom þeim á bragðið gegn Tékkum í kvöld. Hann skoraði á 19. mínútu með marki úr vítaspyrnu og fjórum mínútum síðar var staðan orðin 2-0 eftir þvílíka furðumarkið.
Boltinn fór af Vladimir Coufal eftir horn í slá, þaðan í öxlina á Matej Kovar markverði Tékka og inn fyrir línuna.
Draumabyrjun hjá Írum en þeir köstuðu forystunni frá sér. Patrik Schick minnkaði muninn úr vítaspyrnu á 27. mínútu og undir lok venjulegs leiktíma í síðari hálfleik jafnaði Ladislav Krejci með skalla eftir hornspyrnu á nærstöngina.
Tékkar rétt náðu að slefa inn í framlengingu en hvorugu liðinu tókst að skora og því vítakeppni eina ráðið til þess að finna sigurvegara.
Írar skoruðu úr fyrstu þremur vítunum á meðan Tékkar skoruðu úr tveimur og Caoimhin Kelleher átti öfluga vörslu. Pressan fór með Íra sem klikkuðu á næstu tveimur á meðan Schick og Jan Kliment skoruðu úr sínum spyrnum og sendu Tékka áfram í úrslitaleikinn gegn Dönum.
Ótrúlega svekkjandi fyrir Heimi og félaga. Draumurinn um að komast á HM er úti.
Bosnía fór sömuleiðis áfram eftir sigur á Wales eftir framlengdan leik og vítakeppni.
Staðan eftir venjulegan leiktíma var 1-1. Daniel James skoraði mark Wales á 51. mínútu en hinn reyndi Edin Dzeko jafnaði fyrir Bosníu undir lok leiks.
Dýrmætt mark fyrir Bosníu sem fór síðan með Wales alla leið í vítaspyrnukeppni og hafði þar 4-2 sigur þrátt fyrir slaka byrjun í vítakeppninni.
Ermedin Demirovic klikkaði úr fyrsta vítinu en næstu fjórir skoruðu á meðan Brennan Johnson og Neco Williams klikkuðu hjá Wales og mun Bosnía því spila gegn Ítalíu í úrslitum umspilsins.
Tékkland 2 - 2 Írland (4-3 eftir vítakeppni)
0-1 Troy Parrott ('19 , víti)
0-2 Matej Kovar ('23 , sjálfsmark)
1-2 Patrik Schick ('27 , víti)
2-2 Ladislav Krejci ('86 )
Wales 1 - 1 Bosnía og Hersegóvína (2-4 eftir vítakeppni)
1-0 Daniel James ('51 )
1-1 Edin Dzeko ('86 )
Athugasemdir


