Mo Salah til Sádi? - Alonso klár ef skilyrði verða uppfyllt - Bastoni til Barca eða Liverpool - Hafa ekki áhyggjur af Rashford
banner
   fim 26. mars 2026 21:59
Brynjar Ingi Erluson
Undankeppni HM: Gyökeres setti þrennu og sendi Svía áfram - Framlengt hjá strákunum hans Heimis
Viktor Gyökeres skoraði þrennu og sendi Svía í úrslitaleik
Viktor Gyökeres skoraði þrennu og sendi Svía í úrslitaleik
Mynd: EPA
Gustav Isaksen skoraði tvö í frábærum sigri Danmerkur
Gustav Isaksen skoraði tvö í frábærum sigri Danmerkur
Mynd: EPA
Tonali skoraði og lagði upp fyrir Ítalíu
Tonali skoraði og lagði upp fyrir Ítalíu
Mynd: EPA
Sex Evrópuþjóðir eru komnar áfram í úrslitaleik í umspili um sæti á HM sem fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar. Þrenna Viktor Gyökeres sendi Svía áfram og þá unnu Danir og Ítalir góða sigra.

Svíar komust inn í umspilið vegna góðs árangurs í Þjóðadeildinni og ætla að nýta sér það til fulls.

Gyökeres skoraði öll þrjú mörkin í 3-1 sigri Svía á Úkraínu í undanúrslitum umspilsins. Fyrsta markið gerði hann á sjöttu mínútu og annað snemma í þeim síðari.

Hann fullkomnaði þrennuna úr vítaspyrnu tuttugu mínútum fyrir leikslok. Matvii Ponomarenko minnkaði muninn undir lok leiks en það var allt of seint fyrir Úkraínu sem er úr leik.

Svíar mæta Póllandi sem unnu 2-1 sigur á Albaníu. Albanir fóru með 1-0 forystu inn í hálfleikinn en þeir Robert Lewandowski og Piotr Zielenski sáu til þess að senda Pólland áfram. Sebastian Szymanski lagði upp bæði mörkin.

Sandro Tonali skoraði og lagði upp í 2-0 sigri Ítala á Norður-Írum, en hann gerði mark sitt á 56. mínútu áður en hann lagði annað markið upp fyrir Moise Kean undir lok leiksins.

Ítalía mætir Wales eða Bosníu í úrslitum umspilsins, en það er framlenging í gangi þar. Staðan er 1-1 en Edin Dzeko skaut Bosníu í framlengingu með marki undir lok venjulegs leiktíma.

Strákarnir hans Heimis Hallgrímssonar í Írlandi eru einnig í framlengingu, en staðan þar er 2-2. Írar komust í tveggja marka forystu þökk sé Troy Parrott og sjálfsmarki Matej Kovar, en Tékkarnir komu til baka.

Patrik Schick minnkaði muninn úr vítaspyrnu á 27. mínútu og jafnaði Wolves-maðurinn Ladislav Krejci metin á 86. mínútu. Rafmagnaður leikur í gangi í Prag.

Sigurvegarinn úr einvíginu mætir Dönum sem unnu 4-0 stórsigur á Norður-Makedóníu. Gustav Isaksen skoraði tvö og þá komust þeir Mikkel Damsgaard og Christian Norgaard einnig á blað.

Kósóvó vann ótrúlegan 4-3 sigur á Slóvakíu og mæta því Tyrkjum í úrslitaeinvígi.

Slóvakar fóru með 2-1 forystu inn í hálfleikinn, en Kósóvó skoraði síðan þrjú mörk á 25 mínútum í þeim síðari til þess að tryggja sæti sitt í úrslitaleikinn.

Úrslit og markaskorarar:

Danmörk 4 - 0 Norður-Makedónía
1-0 Mikkel Damsgaard ('49 )
2-0 Gustav Isaksen ('58 )
3-0 Gustav Isaksen ('59 )
4-0 Christian Norgaard ('75 )

Ítalía 2 - 0 Norður-Írland
1-0 Sandro Tonali ('56 )
2-0 Moise Kean ('80 )

Pólland 2 - 1 Albanía
0-1 Arber Hoxha ('42 )
1-1 Robert Lewandowski ('63 )
2-1 Piotr Zielinski ('73 )

Slóvakía 3 - 4 Kósóvó
1-0 Martin Valjent ('6 )
1-1 Veldin Hodza ('21 )
2-1 Lukas Haraslin ('45 )
2-2 Fisnik Asllani ('47 )
2-3 Florent Muslija ('60 )
2-4 Kreshnik Hajrizi ('72 )
3-4 David Strelec ('90 )

Úkraína 1 - 3 Svíþjóð
0-1 Viktor Gyokeres ('6 )
0-2 Viktor Gyokeres ('51 )
0-3 Viktor Gyokeres ('72 , víti)
1-3 Matvii Ponomarenko ('90 )
Slapp
Athugasemdir
banner