Af þeim sjö leikjum sem eru á dagskrá í dag eru fjórir í Pepsi Max-deildum karla og kvenna.
Topplið ÍA tekur á móti Stjörnunni í leik sem verður einnig sýndur beint á Stöð 2 Sport. Fylkir og FH eigast svo við áður en Valur fær Breiðablik í heimsókn í risaslag.
Blikar hafa farið þokkalega af stað en Íslandsmeistarar Vals alls ekki og eru aðeins með fjögur stig úr fimm umferðum.
Í kvennaboltanum eiga nýliðar Keflavíkur leik við Þór/KA. Keflvíkingar eru á botni deildarinnar en fá heimaleik og munu eflaust reyna að valda sem mestum usla.
Leiknir F. fær KFG í heimsókn í 2. deild og svo eru tveir leikir á dagskrá í 4. deild. Þar mætast Hörður Í. og GG annars vegar og Elliði og KFS hins vegar.
Pepsi Max-deild karla
17:00 ÍA-Stjarnan (Stöð 2 Sport - Norðurálsvöllurinn)
19:15 Fylkir-FH (Würth völlurinn)
19:15 Valur-Breiðablik (Stöð 2 Sport - Origo völlurinn)
Pepsi-Max deild kvenna
16:00 Keflavík-Þór/KA (Nettóvöllurinn)
2. deild karla
14:00 Leiknir F.-KFG (Fjarðabyggðarhöllin)
4. deild karla - C-riðill - 4. deild karla
15:00 Hörður Í.-GG (Skeiðisvöllur)
4. deild karla - D-riðill - 4. deild karla
14:00 Elliði-KFS (Fylkisvöllur)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir