Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 26. júní 2019 11:10
Elvar Geir Magnússon
Gömul mynd af Wan-Bissaka í Man Utd treyju
Aaron Wan-Bissaka í Man Utd treyju sem krakki.
Aaron Wan-Bissaka í Man Utd treyju sem krakki.
Mynd: The Sun
Aaron Wan-Bissaka er nálægt því að ganga í raðir Manchester United. Ole Gunnar Solskjær vill fá þennan bakvörð frá Crystal Palace.

The Sun hefur birt gamla mynd af Wan-Bissaka þar sem hann er sem krakki í United treyju.

Hann og bróðir hans ólust upp sem stuðningsmenn United.

Enskir fjölmiðlar halda því fram að Wan-Bissaka muni fara í læknisskoðun hjá United þegar hann kemur frá EM U21 landsliða síðar í vikunni.

Kaupverðið verður í kringum 55 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner