

Sara Björk Gunnarsdóttir var orðin byrjunarliðskona hjá Íslandi á þessum tíma en hún er fædd árið 1990. Var enn bara unglingur þarna.
Það er núna tæp vika í það að Ísland hefji leik á sínu fimmta Evrópumóti í röð. Fyrsta stórmótið sem íslenskt landslið komst á var árið 2009 er stelpurnar okkar komust á EM í Finnlandi.
Þar sem við erum að fara á fimmta mótið í röð, er þá ekki vel við hæfi að rifja upp fyrri mót? Byrjum á mótinu 2009, en Fótbolti.net verður auðvitað í Sviss og mun fjalla vel um liðið þar.
Þar sem við erum að fara á fimmta mótið í röð, er þá ekki vel við hæfi að rifja upp fyrri mót? Byrjum á mótinu 2009, en Fótbolti.net verður auðvitað í Sviss og mun fjalla vel um liðið þar.
Íslenska landsliðið var búið að vera í þróun í mörg ár og þær færðust alltaf nær þessum draumi að komast á EM. Fyrir keppnina 2005 voru þær nálægt því en töpuðu í tveggja leikja umspili gegn Noregi. Katrín Jónsdóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir skoruðu mörkin í fyrri leiknum í Egilshöll sem endaði með 2-7 sigri Noregs. Sá leikur felldi Ísland í því einvígi.
Það voru bara átta lið sem tóku þátt á EM 2005 en fyrir mótið 2009 var þeim fjölgað um fjögur lið. Það jók möguleika Íslands á að taka þátt á stórmóti og draumurinn stækkaði.
Ísland var í öðrum styrkleikaflokki þegar dregið var í riðla fyrir undankeppnina, en til marks um það hvað fótboltinn hefur þróast þá var Spánn í þriðja styrkleikaflokki. Í dag er Spánn líklegasta liðið til að vinna EM en þær eru ríkjandi heimsmeistarar.
Riðill Íslands í undankeppninni:
Frakkland
Ísland
Serbía
Grikkland
Slóvenía
Þegar maður fylgdist með kvennalandsliðinu á þessum tíma þá leið manni eins og það væru alltaf helvítis Frakkarnir. En meira um það síðar.
Ísland fór inn í þessa undankeppni með nýjan þjálfara því Sigurður Ragnar Eyjólfsson tók við liðinu árið 2006. Þetta var hans fyrsta undankeppni og byrjaði liðið hana á 0-3 sigri gegn Grikklandi þar sem Margrét Lára, Ásthildur Helgadóttir og Gréta Mjöll Samúelsdóttir skoruðu mörkin.
Einn stærsti sigur í sögu Íslands
Þann 16. júní mætti Ísland svo liði Frakklands á Laugardalsvelli. Frakkarnir áttu að rúlla yfir þennan riðil og *Höskuldarviðvörun* þær unnu alla leikina nema þennan. Á sólríkum degi á Laugardalsvelli vann íslenska liðið nefnilega einn sinn stærsta sigur í sögunni er þær lögðu Frakka.
Það var Margrét Lára sem skoraði markið en hún er líklega heppin að þetta sé ekki skráð sem sjálfsmark. Svo klaufalegt var það hjá markverði Frakka. En við tökum það. Magnaður sigur sem setti draumana upp á næsta stig.
En eftir 5-0 sigur á Serbíu, þá komu vonbrigðin. Maður er eiginlega enn pirraður í dag þegar maður horfir á þessi úrslit í útileiknum gegn Slóveníu, sem átti að vera slakasta liðið í riðlinum. Margrét Lára kom okkar liði snemma yfir en svo komu Slóvenar til baka og unnu 2-1. Við unnum Slóveníu 5-0 í seinni leiknum heima og það er enn hulin ráðgáta hvernig útileikurinn fór svona.
Ísland fór í úrslitaleik gegn Frakklandi í lokaumferð riðilsins. Liðin voru þá jöfn að stigum og dugði Íslandi jafntefli út af innbyrðis viðureignum. Frakkar komust snemma yfir en fyrirliðinn, Katrín Jónsdóttir, jafnaði fyrir Ísland í byrjun seinni hálfleiks. Frakkar gerðu hins vegar sigurmarkið stuttu eftir það og unnu 2-1. Ef Ísland hefði unnið Slóveníu, þá hefðu þessi úrslit - eftir því sem undirritaður kemst næst - dugað til að koma Íslandi beint á mótið.
Leikurinn eftirminnilegi gegn Írum
En það var bara hakan upp og áfram gakk. Ísland fór í umspilið og dróst þar gegn Írlandi sem endaði í þriðja sæti í sínum riðli; komst áfram með góðan árangur í þriðja sæti. Útileikurinn í Írlandi endaði með 1-1 jafntefli eftir að Hólmfríður Magnúsdóttir hafði komið Íslandi snemma yfir.
Seinni leikurinn hins vegar er einhver eftirminnilegasti leikur síðari ára á Íslandi. Núna var búið að auka kröfurnar í kringum kvennalandsleiki og ekki hægt að spila lengur í Egilshöll. Það var því spilað á frosnum Laugardalsvelli á dimmu Reykjavíkurkvöldi þann 30. október 2008. Morguninn þann dag var ekki enn víst að leikurinn færi fram en hann gerði það nú samt. Íslenska liðið höndlaði svellið á vellinum betur og vann 3-0 sigur.
Byrjunarlið Íslands í 3-0 sigrinum gegn Írlandi:
1. María Björg Ágústsdóttir (m)
2. Guðrún Sóley Gunnarsdóttir
3. Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir
4. Edda Garðarsdóttir
5. Ásta Árnadóttir
6. Hólmfríður Magnúsdóttir
7. Dóra Jónsdóttir
8. Katrín Jónsdóttir (f)
9. Margrét Lára Viðarsdóttir
10. Dóra María Lárusdóttir
11. Sara Björk Gunnarsdóttir
Dóra María var maður leiksins og gerði tvö mörk en Margrét Lára skoraði hitt markið. Þær voru báðar í sterku liði Vals á þessum tíma.
Lentum í dauðariðlinum
Það er óhætt að segja að Ísland hafi lent í dauðariðlinum þegar dregið var í riðla fyrir mótið. Andstæðingar Íslands á mótinu voru Þýskaland, sem var með ógnvekjandi lið á þessum tíma og Frakkland og Noregur. Já, aftur helvítis Frakkarnir. Þær voru þarna það sem Króatía varð síðar fyrir karlalandsliðið; óþolandi góðar og alltaf að mæta okkur.
Þegar hópur Íslands var tilkynntur, þá var fátt sem kom á óvart kannski fyrir utan það að einn nýliði var í honum. Kristín Ýr Bjarnadóttir, sem hafði ekki spilað landsleik, fór með á mótið.
Svona var hópurinn:
Guðbjörg Gunnarsdóttir, Djurgården
Þóra B. Helgadóttir, Kolbotn
Sandra Sigurðardóttir, Stjarnan
Ásta Árnadóttir, Tyresö
Erna Björk Sigurðardóttir, Breiðablik
Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, Djurgården
Katrín Jónsdóttir, Valur
Ólína G. Viðarsdóttir, KIF Örebro
Sif Atladóttir, Valur
Dóra Stefánsdóttir, LdB Malmö
Edda Garðarsdóttir, KIF Örebro
Erla Steina Arnardóttir, Kristianstad
Hólmfríður Magnúsdóttir, Kristianstad
Katrín Ómarsdóttir, KR
Rakel Logadóttir, Valur
Sara Björk Gunnarsdóttir, Breiðablik
Dóra María Lárusdóttir, Valur
Fanndís Friðriksdóttir, Breiðablik
Guðný Björk Óðinsdóttir, Kristianstad
Kristín Ýr Bjarnadóttir, Valur
Margrét Lára Vðarsdóttir, Kristianstad
Rakel Hönnudóttir, Þór/KA
Þetta voru þeir leikmenn sem voru fyrstu fulltrúar Íslands á Evrópumótinu, brautryðjendurnir. Mótið í Finnlandi hófst í lok ágúst. Eitt það skemmtilegasta við upphitunina fyrir mótið hér á síðunni var það að leikmenn í liðinu skiluðu af sér tveimur dagbækum fyrir fyrsta leik þar sem þær gáfu lesendum innsýn inn í það hvernig lífið væri á stórmóti.
Guðbjörg Gunnarsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir skrifuðu fyrstu dagbókina þar sem þær skrifuðu um ferðalagið og fyrsta daginn. Því næst skrifuðu Ásta Árnadóttir, Rakel Logadóttir og Katrín Jónsdóttir um dag tvö í Finnlandi.
„Á æfingu í dag var spilaður API en það er leikur þar sem bolta er haldið á lofti og sá sem missir hann fær A og svo framvegis... Þannig þróaðist leikar að Fanndís ákvað að fara í annan leik sem heitir „screw your neighbour“ og dúndraði með tilþrifum í Sigga Ragga sem varð til þess að Siggi tapaði leiknum og varð því að leika APA og eftir á þurfti að hringja á vælubílinn. Að hans mati var þetta víst e-ð vafasamt. En hann lét sig svo hafa það og gerði tilraun til að leika apa. Eitthvað hefur þó líffræði kennsla Sigga Ragga verið ábótavant þar sem að leikþáttur hans minnti helst á mennskan sel," segir meðal annars í þeim pistli.
Stóðum í liðunum en töpuðum öllum leikjunum
Í mótinu sjálfu verður að segjast að Ísland átti kannski ekki mikinn möguleika í þessum gríðarlega erfiðum riðli. Frakkarnir voru okkur erfiðir þrátt fyrir að íslenska liðið hafi komist yfir. Hólmfríður Magnúsdóttir gerði fyrsta mark Íslands á stórmóti eftir sex mínútur í þeim leik, en það dugði því miður skammt. Camile Abily jafnaði og bættu Sonia Bompastor, núverandi þjálfari Chelsea, og Louisa Necib við mörkum. Margrét Lára klikkaði á víti í stöðunni 1-3.
Í öðrum leiknum gegn Noregi vorum við í aðeins meiri séns. Það var eitt mark sem skildi liðin að en það gerði Cecilie Pedersen undir lok fyrri hálfleiks. „Það var gaman að fylgjast með íslenska liðinu í kvöld. Liðið var þéttara en gegn Frakklandi og leikmenn voru að vinna fyrir hvora aðra. Það vantaði aðeins upp á sóknarleikinn en í heildina séð voru fínar framfarir frá Frakkaleiknum á mörgum sviðum," skrifaði Mist Rúnarsdóttir í skýrslu sinni frá leiknum en þarna var það ljóst að 8-liða úrslitin væru ekki möguleg.
Liðið mætti svo ógnarsterku liði Þýskalands í lokaleiknum. Fyrir þann leik mættu Auddi og Sveppi á blaðamannafund og tóku viðtal við leikmenn landsliðsins. Þeir voru á þeim tíma að að taka upp efni fyrir þættina „Sveppa & Audda“ sem voru sýndir á Stöð 2 um veturinn.
Stelpurnar okkar gerðu vel í að standa í besta liði heims, en það dugði skammt. Inka Grings, sem er í dag þjálfari Láru Kristínar Pedersen hjá Club Brugge, gerði sigurmarkið í byrjun seinni hálfleiks. „Mér fannst Ísland spila vel í dag og við vorum ekki nógu vel inní leiknum. Ég held að 1-0 séu fín úrslit fyrir Ísland en alls ekki fyrir Þýskaland," sagði Grings eftir leikinn.
Hún sagði jafnframt að hún sæi ekki hvaða lið ætti að vinna Þýskaland á þessu móti og það var raunin; Þjóðverjar fóru alla leið og báru sigur úr býtum á mótinu. Þær unnu England 6-2 í úrslitaleiknum þar sem Grings skoraði tvennu og markavélin Birgit Prinz gerði einnig tvö mörk.
„Íslenska stuðningsfólkið var frábært að vanda. Það má segja að þau séu ósigruð þriðja leikinn í röð og ættu með réttu að vera á leið í 8-liða úrslit. Það er vonandi að íslendingar haldi áfram að styðja svona vel við bakið á stelpunum okkar en þær fá ekki langa hvíld þar sem að næsti leikur í undankeppni HM verður spilaður á Laugardalsvelli þann 17.september næstkomandi. Þá mætir Eistland í heimsókn og spilar við besta A-landslið sem Ísland hefur átt í fótbolta," skrifaði Mist í skýrslu sinni frá leiknum gegn Þýskalandi en Margrét Lára var markahæsti leikmaður EM þó hún hafi ekki skorað á mótinu sjálfu. Margrét Lára skoraði í heildina 12 mörk í undankeppninni og var markahæst yfir keppnina alla. Edda Garðarsdóttir var sá leikmaður sem braut mest af sér.
Ísland 1 - 3 Frakkland
Ísland 0 - 1 Noregur
Ísland 0 - 1 Þýskaland
Það var svo sannarlega skemmtilegt fyrir Íslendinga að fylgjast með stelpunum á stóra sviðinu í fyrsta sinn. Þetta mót var samt bara upphafið. Svo fór liðið líka á EM 2013, 2017, 2022 og núna 2025.
Blaðamaður Fótbolta.net er núna staddur í Serbíu að fylgja liðinu eftir fyrir mótið núna og á næstu dögum verður líka skrifað um síðustu þrjú mót hér á síðunni.
Athugasemdir