Fotbolti.net
26.09.20 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Subway

England í dag - Man Utd og Chelsea eiga útileiki

Ole Gunnar Solskjær og Frank Lampard þurfa sigra í dag.

Ole Gunnar Solskjær og Frank Lampard þurfa sigra í dag.

Canon

Mynd: Getty Images

Það eru fjórir leikir á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í dag og verða þeir allir sýndir beint í sjónvarpi Símans.
Manchester United mætir til leiks fyrir hádegi á útivelli gegn áhugaverðu liði Brighton sem hefur byrjað tímabilið af krafti.

Rauðu djöflarnir byrjuðu á tapleik gegn Crystal Palace og þurfa því sigur í dag til að koma sér á rétta braut.

Crystal Palace og Everton mætast svo í hörkuleik þar sem bæði lið eru búin að vinna fyrstu tvo leiki sína. Gylfi Þór Sigurðsson er búinn að missa byrjunarliðssæti sitt undir stjórn Carlo Ancelotti, sem keypti þrjá nýja miðjumenn í september.

Nýliðar West Brom taka þá á móti Chelsea áður en Burnley fær Southampton í heimsókn í síðasta leik dagsins. Jóhann Berg Guðmundsson verður fjarverandi vegna hnémeiðsla.

Leikir dagsins:
11:30 Brighton - Man Utd (Síminn)
14:00 Crystal Palace - Everton (Síminn)
16:30 West Brom - Chelsea (Síminn)
19:00 Burnley - Southampton (Síminn)

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.