Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 26. september 2021 15:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mbappe: Neymar sendir aldrei boltann
Mbappe og Neymar
Mbappe og Neymar
Mynd: Getty Images
Paris Saint-Germain vann 2-0 sigur á Montpellier í gær.

Lionel Messi var frá vegna meiðsla en Angel Di Maria byrjaði með Mbappe og Neymar í fremstu víglínu. Idrissa Gana Gueye kom PSG yfir í fyrri hálfleik og Julian Draxler bætti öðru marki við undir lok leiksins.

Pochettino stjóri PSG gerði tvöfalda skiptingu á 88. mínútu er hann tók Mbappe og Di Maria af velli fyrir Icardi og Draxler, markið kom nokkrum sekúndum síðar, eftir sendingu frá Neymar.

Mbappe var ekki sáttur er hann var tekinn af velli en hann settist á bekkinn og kvartaði yfir því að Neymar sendir aldrei boltann. „Hann sendir aldrei boltann á mig," segir hann í myndbandinu hér að neðan samkvæmt franska miðlinum RCM Sport


Athugasemdir
banner
banner
banner