Messi skoraði sitt tuttugasta mark - Grænhöfðaeyjar jöfnuðu verðskuldað

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það er ótrúleg staða í leik Argentínu og Grænhöfðaeyja í 32-liða úrslitum á HM.
Þegar um 20 mínútur eru til loka venjulegs leiktíma er staðan 1-1. Lionel Messi kom Argentínu yfir í fyrri hálfleik en Grænhöfðaeyjar hafa átt færin í seinni hálfleik og jöfnuðu eftir klukkutíma leik.

Messi skoraði eftir hálftíma leik. Lisandro Martinez átti frábæra sendingu inn fyrir vörn Grænhöfðaeyja, Messi tók frábærlega á móti honum og skoraði yfir Vozinha í marki Grænhöfðaeyja.
Þetta var tuttugasta mark Messi á heimsmeistaramóti en hann er markahæstur í sögu mótsins. Hann hefur stórbætt met Miroslav Klose sem skoraði 16 mörk á sínum tíma.
Grænhöfðaeyjar byrjuðu seinni hálfleikinn mun betur. Þeim tókst að jafna metin þegar Deroy Duarte fékk boltann inn á teignum og skoraði með skoti í fjærhornið.
Sjáðu markið hjá Messi
Sjáðu markið hjá Duarte