26.09.26 - 06:30
Auglýsingar
Leikdagur á Laugardalsvelli - Völlurinn opnar 90 mínútum fyrir leik

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslenska karlalandsliðið tekur á móti Eistlandi í Þjóðadeildinni á Laugardalsvelli í dag. Leikurinn hefst klukkan 16:00.
Miðasala á leikinn hefur tekið vel við sér síðustu daga og má því búast við góðri stemningu í Laugardalnum þegar flautað verður til leiks.
Áhorfendum gefst kostur á að mæta snemma á völlinn en hlið Laugardalsvallar opna klukkan 14:30, eða 90 mínútum fyrir upphaf leiks.

Ýmislegt verður í boði fyrir stuðningsfólk á vallarsvæðinu fyrir leik. Þar má meðal annars nefna matarvagna, sjoppur, vínveitingasvæði, sölu á landsliðsvarningi og andlitsmálun.
Áhorfendur eru hvattir til að mæta tímanlega á völlinn, njóta leikdagsins og styðja strákana til sigurs.
Áfram Ísland!
Áhorfendur eru hvattir til að mæta tímanlega á völlinn, njóta leikdagsins og styðja strákana til sigurs.
Áfram Ísland!