Fotbolti.net
26.09.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Ætlar að gefa Kopa verðlaunin til Cubarsí ef hann vinnur þau ekki sjálfur

Ætlar að gefa Kopa verðlaunin til Cubarsí ef hann vinnur þau ekki sjálfur
Canon

Mynd: EPA

Lamine Yamal segir að liðsfélagi sinn Pau Cubarsí eigi skilið að vinna Kopa verðlaunin sem eru veitt árlega á Ballon d'Or verðlaunahátíðinni fyrir besta unga leikmann ársins.
Rodri: Eðlilegt að Barca standi með Yamal
TENGT EFNI

Rodri: Eðlilegt að Barca standi með Yamal

Verðlaununum var bætt við Ballon d'Or hátíðina 2018 og varð Yamal sá fyrsti til að vinna þau tvisvar í röð þegar hann var verðlaunaður í fyrra.

Yamal kemur aftur til greina í ár og gæti þar með unnið þau þriðja árið í röð, en hann hefur ekki áhuga. Það hefur ekki farið framhjá neinum að hann þráir að vinna Ballon d'Or verðlaunin. Hann yrði þar með yngsti sigurvegari Ballon d'Or sögunnar eftir að brasilíski Ronaldo var valinn bestur í kjörinu 1997.

„Að mínu mati var Cubarsí besti ungi leikmaður í heimi á síðustu leiktíð. Hann er eins og ég, hann á skilið að vinna annað hvort Kopa verðlaunin eða Ballon d'Or í ár," sagði Yamal, en þeir félagarnir eru tilnefndir fyrir bæði verðlaunin.

„Þegar ég vann Kopa verðlaunin í fyrra sagði ég við Cubarsí að hann yrði næstur. Ef hann vinnur verðlaunin ekki í ár, sama af hvaða ástæðu, þá mun ég gefa honum verðlaunin sjálfur."
Ætlar að gefa Kopa verðlaunin til Cubarsí ef hann vinnur þau ekki sjálfur
Canon

Mynd: EPA

Ætlar að gefa Kopa verðlaunin til Cubarsí ef hann vinnur þau ekki sjálfur
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.