26.10.26 - 16:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bjarki Björn gæti yfirgefið ÍBV

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarki Björn Gunnarsson gæti yfirgefið ÍBV í vetur en hann vill samkvæmt heimildum Fótbolta.net spila í efstu deild. ÍBV féll úr Bestu deildinni á nýliðnu tímabili.
Bjarki Björn er fæddur árið 2000, er fjölhæfur leikmaður sem getur bæði spilað miðsvæðis og á kantinum. Hann er uppalinn Víkingur en var keyptur til Eyja undir lok árs 2024.
Hann skoraði þrjú mörk og lagði upp fimm í 25 leikjum í sumar og í 23 af þeim var hann í byrjunarliðinu.

Hann hefur síðustu tvö tímabil einu sinni á hvoru tímabili verið valinn maður umferðarinnar hér á Fótbolti.net.
Bjarki er með skráðan samning við ÍBV út næsta tímabil. Þeir Omar Sowe, Milan Tomic og Sigurður Arnar Magnússon eru með lausa samninga hjá ÍBV og þeir Ari í Haraldsstovu Petersen, Róbert Elís Hlynsson og Aron Lucas Vokes voru á láni hjá ÍBV á tímabilinu.