26.10.26 - 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fannst framkoman við Amin sorgleg

Amin sló í gegn með KR í sumar áður en hann var seldur út á stóra upphæð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Amin lék frábærlega með Njarðvík á síðasta ári.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þórhallur þjálfaði Amin í yngri flokkum HK.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Amin er í dag leikmaður Viking í Noregi.

Mynd: Viking

Amin Cosic varð á dögunum 19. Íslendingurinn til að spila í Meistaradeild karla er hann kom inn á sem varamaður hjá norska félaginu Viking gegn Aston Villa. Leið hans að þessum leik var ekki greið.
Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 23. október á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistilinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.
Þú getur skráð þig með því að smella hérna.

Amin, sem er tvítugur, var nefnilega að spila í Lengjudeildinni í fyrra með Njarðvík. Amin er uppalinn hjá HK en fékk ekki tækifæri með meistaraflokknum þar og leitaði því til Njarðvíkur.
„Þegar hann var í öðrum flokki fannst mér hann vera besti leikmaður flokksins," sagði Þórhallur Dan Jóhannsson, sem þjálfaði Amin í yngri flokkum HK, við Fótbolta.net. „Mér fannst hins vegar gengið fram hjá honum í meistaraflokki á þessum tíma. Þeir vildu ekki nota hann og mér skilst að honum hafi meðal annars verið lýst sem of hrokafullum á æfingum."
„Ég reyndi mikið að fá menn til að skilja hversu góður hann væri. Ég taldi að þetta gæti orðið leikmaðurinn sem félagið myndi selja fyrst. En það var ekki hlustað."
„Þegar ég var sjálfur ungur leikmaður og kom upp í meistaraflokk 16 ára var ég algjör hrokagikkur. Ég reif kjaft og þurfti að læra að fullorðnir menn myndu segja mér til syndanna. Ég lærði af því, en það þýðir ekki að maður eigi að taka sjálfstraustið úr leikmanni sem hefur sérstaka hæfileika.“
Þórhallur segir að það hafi verið erfitt að sjá leikmann sem hann hafði fylgst með frá unga aldri þurfa að leita annað til að fá tækifæri til að þróast áfram. Hann telur jafnframt að HK hafi mögulega misst af miklum verðmætum.
„Þú getur rétt ímyndað þér. Ég ætla ekki að fullyrða um nákvæmar fjárhæðir, en maður getur velt fyrir sér hversu miklar tekjur félagið hefði getað fengið ef hann hefði fengið tækifæri þar."
Hann fór frá Njarðvík til KR og þaðan til Viking. Salan á Amin frá KR til Viking er ein sú stærsta í sögu íslenska fótboltans en talað hefur verið um að norsku meistararnir hafi borgað um 80 milljónir króna fyrir hann.
„Það sorglega við þetta er að HK hafði verið að þróa hann frá því hann var krakki. Þjálfarar félagsins höfðu lagt mikla vinnu í hann, en mér fannst framkoman við hann á þessum tíma sorgleg," segir Þórhallur.

TENGT EFNI
„Ein mesta perla sem ég hef kynnst" - Frá Njarðvík í Meistaradeildina á rúmu ári