Fotbolti.net
27.10.26 - 13:33
Kári Snorrason

Stuðningsmenn Blika tjá sig um tíðindin - „Ekki mannréttindi knattspyrnumanna að spila tiki-taka bolta“

Ólafur Ingi hefur látið af störfum sem þjálfari Breiðabliks.

Ólafur Ingi hefur látið af störfum sem þjálfari Breiðabliks.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í morgun tilkynnti Breiðablik um það að Ólafur Ingi Skúlason myndi ekki halda áfram sem þjálfari liðsins á næsta tímabili.

Ólafur tók við liðinu undir lok síðasta tímabils og stýrði hann Blikum til sigurs í Mjólkurbikarnum á nýloknu tímabili. Stigasöfnun liðsins í deildinni var þó heldur dræm og endaði liðið í 5. sæti Bestu deildarinnar.

Fótbolti.net tók púlsinn á fjórum stuðningsmönnum Breiðabliks og lagði fyrir þá eftirfarandi fjórar spurningar.

1) Hvernig horfa tíðindin við þér?

2) Var liðið á réttri leið undir stjórn Ólafs Inga?

3) Hvað hefði mátt betur fara?

4) Hvern viltu sjá taka við liðinu?
Leiðir Ólafs Inga og Breiðabliks skilja (Staðfest)
TENGT EFNI

Leiðir Ólafs Inga og Breiðabliks skilja (Staðfest)



Sigurjón Jónsson
1) Er frekar hissa satt að segja því eftir að við lönduðum bikarnum þá gerði ég ráð fyrir því að hann tæki næsta tímabil en spilamenskan og frammistaðan í þessum síðustu leikjum hefur verið ansi léleg og botninn tók úr á móti KR.

2) Miðað við það var liðið ekki á neinni leið þannig séð. Vegferðin hjá félaginu eftir Dóra Árna hefur ekkert voða sýnileg og þetta hefur verið ansi handahófskennt.

3) Það virðist hafa vantað upp ansi margt í sumar því leikmannahópurinn getur miklu betur. Maður fékk það á tilfinninguna inn á milli að leikmenn voru ekki mótiveraðir oft á tíðum. Gömlu karlarnir gáfu aðeins eftir í sumar og aðrir stigu ekki upp.

4) Jökull ætti að taka við. Maður með sterka tengingu við félagið og nægilega manískur til að ná árangri. Back up plan er að sækja Sigga Höskulds í þorpið.


Eysteinn Þorri Björgvinsson
1) Bara leiðinlegt, en kannski ekkert rosalega óvænt miðað við umræðuna. Ég var harður Ólafs Inga maður, maðurinn skrifaði sig á spjöld sögunnar hjá félaginu með að verða 4. þjálfarinn í sögu meistararaflokks karla til að vinna stóran titil. Breiðablik er greinilega kominn á annan stað síðan ég var lítill polli þegar 5. titill í sögu félagsins er ekki nóg til að fá að halda áfram með liðið. Ég hafði viljað sjá hann fá næsta tímabil en þeir sem ráða voru því miður ekki á sama máli.

2) Já og nei, upplifunin hefur verið að leikmenn hafa ekki alveg verið með honum. Óli kom með nýjan leikstíl inn í félagið og leikmenn voru greinilega ekki til að fylgja í takt. Fyrir mig persónulega eru það mikil vonbrigði. Fyrir mér eiga bara leikmenn að bakka þann leikstíl upp, það eru ekki mannréttindi knattspyrnumanna að spila tiki taka bolta og pressa maður á mann.

3) Það vantaði stöðugleika, við vorum frábærir í einstökum leikjum en svo hrikalega dapurt inn á milli. Það þarf bara að fá leikmenn til að vinna með þjálfaranum, það þurfa allir að ganga í takt að því að rífa sig í gang í deildinni og koma okkur aftur í baráttuna um að vinna íslandsmeistaratitilinn sem vonandi kemur með nýjum manni í brúnna.

4) Ég vil sjá mann með tengingu við félagið og reynslu. Ólafur Helgi Kristjánsson er maður sem ég væri til í að fá til baka í Kópavoginn. Hann er ákveðið sameiningartákn í Smáranum eftir hans frábæru veru þar. Ef það gengur ekki þá á bara að fara með stóru seðlana upp í Úlfarsárdal og kaupa Rúnar Kristins.


Freyr Snorrason
1) Þetta kom mér í opna skjöldu. Bjóst, satt að segja, ekki við þessu.

2) Ég held nefnilega ekki. Það vantaði stöðugleika að öllu leyti. Við fórum inn í tímabil með enga Evrópuleiki á dagatalinu og það var mjög óljóst hvernig leikstíl liðið myndi spila og þar tekur þjálfarinn ábyrgðina. Fyrir þau sem ekki muna þá byrjuðum við Blikar tímabilið eins og brothætt ítalskt stórveldalið með lítið sjálfstraust og ætluðum að verja okkur til sigurs. Áttum mjög erfitt með að skora en héldum oft hreinu og Anton Ari sannaði sig sem langbesti markvörðurinn í deildinni.

Þetta var hins vegar mjög leiðinlegt áhorfs og það var komin pressa af pöllunum um að gerast sókndjarfari. Þá fóru leikirnir alveg á hina hliðina, við skoruðum fullt en byrjuðum að leka endalaust af mörkum. Þetta varð svo saga tímabilsins, einn góður leikur næstu tveir lélegir svo koll af kolli. Maður sá þó snemma að Ólafur Ingi er mjög góður í að setja upp einstaka leiki, t.a.m. árangurinn í bikarkeppninni er dæmi um það sem og leikirnir í Sambandsdeildinni haustið og veturinn 2025.

3) Já árangurinn var mikil vonbrigði. 4 sæti í fyrra var þungt og að enda núna í 5 sæti er ekki boðlegt fyrir Breiðablik. Eins og ég tók til hér að ofan þá vantaði allan stöðugleika í liðið. Held samt að vandi Breiðabliks sé stærri en Ólafur Ingi Skúlason, það hefur verið doði yfir liðinu og ég hef haft vonda tilfinningu fyrir því hvernig haldið er á málum félagsins á skrifstofunni, það er eitthvað andleysi sem smitar út frá sér.

Það birtist til að mynda í hve slæm aðsóknin var á Kópavogsvöll í sumar, mfl. ráð virðist veikt, erfiðara að fá sjálfboðaliða á vaktir, o.s.frv., svo set ég einnig spurningarmerki við það að það séu sömu þjálfarar að þjálfa í 3. og 2. fl. síðan ég var að æfa (er fæddur 1997!) og það er engin ákveðin stefna um leikstíl. Svo gæti ég byrjað að nefna áhugaleysi Breiðabliks og þessara þjálfara á Augnablik en það er efni í annan pistil. Ég er þó sáttur við að þau sem ráða hjá Breiðablik voru ekki sátt við hvert félagið var að stefna og vildu bregðast við á einhvern máta en það gæti þurft meira til.

4) Vá það er enginn augljós kandídat og óttast að það sé ekki nógu skýrt plan um hver eða hvernig þjálfari eigi að taka við. Tel að Jökull Elísabetar sé á blaði, hann myndi 100% taka Hrannar Jónsson frá KR með sér. Eiður Smári án bakpoka er eitthvað til að skoða en hann þyrfti öflugt teymi með sér. Arnar Gunnlaugsson er svo í heitu sæti í landsliðinu en kannski er kominn tími aftur á Ólaf Kristjánsson.


Hilmar Jökull Stefánsson
1) Þetta horfir bara vel við mér. Ég er ekkert ósáttur við að hann sé hættur.

2) Mér fannst þetta ömurlegt tímabil í deildinni, við endum í 5. sæti og það er bara vandræðalegt. Með mínus þrjá í markatölu og fáránlega fá stig miðað við síðustu 8-9 ár. Liðið var alls ekki á réttri leið.

3) Mér fannst vanta baráttu og vilja margra leikmanna. Það er ekki þar með sagt að það hafa valdið því hvernig fór á tímabilinu. Mér fannst enginn leikstíll á liðinu, enginn bragur og ekki eins og það hafi verið neitt upplegg. Mér fannst þetta alltaf frekar random. Bikarúrslitaleikurinn var vel upp settur en þannig á það að vera yfir allt tímabilið.

4) Ég vona að Eiður Smári eða Magnús Már taki við. Þeir eru báðir flottir kandídatar. Ég vil sjá þjálfara sem vill spila Blikaboltann, þann bolta sem stuðningsmenn eru ánægðir með og félagið hefur mótað sér stefnu með.


Guðjón Már Sveinsson

1) Ólafur Ingi lætur af störfum, hvernig horfir það við þér?
Þetta kemur mér ekkert á óvart. Það var búin að vera mikil ólga í kringum liðið alveg síðan í blábyrjun tímabilsins. Ég þakka honum bara fyrir sín störf og áfram gakk.

2) Nei alls ekki. Liðið virkaði algerlega áhugalaust, kraftlaust, andlaust og leiðtogalaust. Ég bara man varla eftir slappara Blikaliði síðastliðin 20 ár. Varnarleikur liðsins var oftar en ekki í molum og Anton Ari okkar langbesti maður í sumar. Ásgeir Helgi hefði að mínu mati átt að fá lyklana að vörninni allt tímabilið. Það hjálpaði ekki heldur til að missa Valgeir út og svo var Andri Yeoman meira og minna meiddur allt tímabilið.
Menn spurðu sig oft, réttilega, „hvað einkennir þetta Blikalið?“ við vorum ekki góðir varnarlega, ekki góðir sóknarlega, ekki góðir að harka út úrslit, ekki góðir að halda bolta, ekki góðir að sækja hratt. Það virkar satt best að segja eins og að Ólaf Inga vanti bara meiri þjálfarareynslu til að ákveða hvernig fótbolta hann vill að sín lið spili. Vonandi gengur honum bara vel í sínum næstu verkefnum og hann á vissulega alltaf þennan bikarmeistaratitil.

3) Gríðarleg vonbrigði, ég var að gæla við alvöru atlögu að titlinum. Ég hef reyndar alltaf bullandi trú á titlinum á hverju ári. Það þarf mikla endurnýjun í hópinn og menn þurfa að finna fyrir hungri á ný. Ég held að við þurfum að minnsta kosti 5 nýja leikmenn í hópinn og treysta einnig á uppalda unga leikmenn. Það er svo sem alveg verið að losa eldri leikmenn en það vantar kannski, eins og áður segir, meira hungur í aðra lykilleikmenn. Þá held ég að það þurfi heldur betur að taka til á skrifstofum félagsins. Eftir að Eysteinn framkvæmdarstjóri (nú hjá KSÍ) hætti og Hákon Sverris hvarf á braut hefur vegur félagsins bara alls ekki verið sá sami.

4) Ég væri helst til í að fá inn einhvern sem er með tengingu við félagið. Líka að aðstoðarþjálfarar séu tengdir félaginu og séu reiðubúnir að gefa ungum leikmönnum tækifæri. Það þarf ekkert að fara mörgum orðum um hið magnaða yngri flokka starf félagsins. 2.flokkur er t.d. ríkjandi Íslandsmeistari.
Bikarmeistarar.

Bikarmeistarar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Breiðablik endaði í 5. sæti í deildinni.

Breiðablik endaði í 5. sæti í deildinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurjón Jónsson.

Sigurjón Jónsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jökull er sterklega orðaður við starfið.

Jökull er sterklega orðaður við starfið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eysteinn Þorri Björgvinsson.

Eysteinn Þorri Björgvinsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Freyr Snorrason fagnar með Laufdal-bræðrum.

Freyr Snorrason fagnar með Laufdal-bræðrum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óli Kristjáns þekkir Breiðablik vel.

Óli Kristjáns þekkir Breiðablik vel.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

,,Breiðablik er greinilega kominn á annan stað síðan ég var lítill polli þegar 5. titill í sögu félagsins er ekki nóg.

,,Breiðablik er greinilega kominn á annan stað síðan ég var lítill polli þegar 5. titill í sögu félagsins er ekki nóg.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Smári hefur verið nefndur sem mögulegur kostur.

Eiður Smári hefur verið nefndur sem mögulegur kostur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hilmar Jökull með gjallarahornið.

Hilmar Jökull með gjallarahornið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Magnús Már hefur jafnframt verið orðaður við starfið.

Magnús Már hefur jafnframt verið orðaður við starfið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðjón Már til vinstri ásamt Kristjáni Óla Sigurðssyni.

Guðjón Már til vinstri ásamt Kristjáni Óla Sigurðssyni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

,,Ég var að gæla við alvöru atlögu að titlinum.

,,Ég var að gæla við alvöru atlögu að titlinum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Menn spurðu sig oft, réttilega, „hvað einkennir þetta Blikalið?“'

'Menn spurðu sig oft, réttilega, „hvað einkennir þetta Blikalið?“'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.