27.10.26 - 09:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Leiðir Ólafs Inga og Breiðabliks skilja (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Jón Guðni verður ekki heldur áfram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Ingi Skúlason hefur látið af störfum sem þjálfari meistaraflokks karla hjá Breiðabliki. Hann var þjálfari liðsins í rétt rúmlega eitt ár og gerði liðið að bikarmeisturum á nýliðnu tímabili.
Ólafur tók við liðinu eftir að hafa stýrt U21 landsliðinu og undir hans stjórn náði Breiðablik í sín fyrstu stig í Sambandsdeildinni.
Liðið endaði í 5. sæti Bestu deildarinnar á nýliðnu tímabili sem var vel undir væntingum. Aðstoðarþjálfarinn Jón Guðni Fjóluson lætur einnig af störfum.
„Ég kveð Breiðablik sáttur og stoltur af þeim árangri sem við náðum saman. Ég skil við klúbbinn á frábærum stað og óska Breiðablik og öllum sem að liðinu standa velfarnaðar í framtíðinni," segir Ólafur.
Þeir Eiður Smári Guðjohnsen, Magnús Már Einarsson og Jökull Elísabetarson hafa undanfarnar vikur verið orðaðir við þjálfarastarfið hjá Blikum.

Tilkynning Breiðabliks
Ólafur Ingi Skúlason lætur af störfum sem þjálfari meistaraflokks karla Breiðabliks.
Ólafur Ingi kom til starfa hjá Breiðablik í október 2025 og stýrði sínum fyrsta leik gegn Finnska liðinu KuPs í Sambandsdeildinni. Í leiknum náði liðið í sín fystu stig í deildakeppni í Evrópu. Undir stjórn Ólafs náði liðið í fimm stig í deildakeppninni sem var góður árangur. Á nýloknu keppnistímabili leiddi hann liðið til bikarmeistaratitils í annað skiptið í sögu félagsins og er það jafnframt fimmti titill meistaraflokks karla.
Á tíma sínum hjá félaginu hefur Ólafur lagt áherslu á að gefa ungum leikmönnum tækifæri í meistaraflokki og lagt sig allan fram um að leyfa þeim að þroskast sem leikmenn. Honum var umhugað um hagsmuni félagsins og átti í afar góður samstarfi við þá sem að félaginu standa.
Samhliða þessum breytingum lætur Jón Guðni Fjóluson, aðstoðarþjálfari liðsins, einnig af störfum.
Ólafur vill koma á framfæri þakklæti til félagsins og allra þeirra sem að starfi þess koma: „Ég kveð Breiðablik sáttur og stoltur af þeim árangri sem við náðum saman. Ég skil við klúbbinn á frábærum stað og óska Breiðablik og öllum sem að liðinu standa velfarnaðar í framtíðinni."
Knattspyrnudeild Breiðabliks þakkar Ólafi Inga og Jóni Guðna fyrir sín störf og óskar þeim velfarnaðar í þeim verkefnum sem taka við.