Fotbolti.net
27.10.26 - 10:52
Elvar Geir Magnússon

Rekinn vegna leikstílsins?

Samantekt

Ólafur Ingi Skúlason var rekinn.

Ólafur Ingi Skúlason var rekinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik sendi frá sér fréttatilkynningu í morgun þar sem fram kom að leiðir félagsins og þjálfarans Ólafs Inga Skúlasonar hefðu skilið.

Ólafur og Flosi Eiríksson, formaður Breiðabliks, hafa engu viljað bæta við yfirlýsinguna að svo stöddu.
Leiðir Ólafs Inga og Breiðabliks skilja (Staðfest)
TENGT EFNI

Leiðir Ólafs Inga og Breiðabliks skilja (Staðfest)

„Ég skil við klúbbinn á frábærum stað," sagði Ólafur í yfirlýsingunni og það má alveg kvitta undir það. Liðið varð bikarmeistari sem þýðir sæti í forkeppni Evrópudeildarinnar.

Stemningsleysi
En Ólafur fékk talsverða gagnrýni á tímabilinu fyrir leikstíl liðsins sem þótti of varnarsinnaður og skemmtanagildið ekki hátt. Eitthvað sem rímaði ekki við það sem Breiðablik vill standa fyrir. Ofan á það voru úrslitin ekki nægilega góð og liðið datt oft á tíðum á ansi lágt plan.

Stemningsleysið á heimaleikjum liðsins var áberandi og sumir stuðningsmenn fóru ekki leynt með gagnrýni og óánægju. Sagt er að sú óánægja hafi líka verið til staðar innan klefans hjá Breiðabliki og einhverjir leikmenn ekki ætlað að framlengja við félagið ef hann yrði áfram með stjórnartaumana.

Niðurstaðan á endanum varð brottrekstur, Ólafur var rekinn. Margir halda kannski að 8-3 tapið gegn KR í lokaumferðinni hafi verið síðasti naglinn í kistuna en það sem við á Fótbolta.net heyrum er að örlög Ólafs hafi í raun verið ákveðin í landsleikjaglugganum langa.

Hver tekur við Breiðabliki og kallar Árbærinn í Óla?
Miðað við þetta verður verkefni nýs þjálfara ekki bara að bæta gengið heldur líka að spila áhorfendavænni fótbolta. Ef ég væri með veðbanka væru Eiður Smári, Jökull og Magnús Már líklegastir.

En hvað gerir Ólafur Ingi næst? Það er auðvelt að reyna að geta í eyðurnar. Heimir Guðjónsson virðist vera að yfirgefa Fylki, uppeldisfélag Ólafs. Ólafur er ungur þjálfari sem mun vafalítið draga mikinn lærdóm af þessu ári í Kópavoginum. Hann yrði strax langlíklegastur sem næsti þjálfari í Árbænum ef Heimir fer.
Rekinn vegna leikstílsins?
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.