Fotbolti.net
27.11.26 - 20:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Bowen íhugar að yfirgefa West Ham

Bowen íhugar að yfirgefa West Ham
Canon

Mynd: EPA

Jarrod Bowen gæti yfirgefið West Ham í sumar en liðið er í vandræðum í Championship deildinni.

West Ham féll úr úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð en Bowen segir að hann vildi vera áfram til að koma liðinu aftur upp. Hann segir hins vegar að hann muni ræða um framtíð sína við stjórnarmenn West Ham ef liðinu mistekst að komast aftur upp í úrvalsdeildina.
Liðið er í 13. sæti, fjórum stigum frá umspilssæti.

„Ég vildi alltaaf gefa þessu séns, að koma þessu félagi aftur upp í úrvalsdeildina. Ég vildi vera fremstur í flokki í því. Það er rangt að horfa of langt fram í tímann því maður verður að setja alla orku í þetta tímabil," sagði Bowen.

„Ef það tekst ekki þá munum við setjast niður og ræða málin eftir tímabilið. Eins og er þá verðum við að setja alla orku í þetta tímabil því við getum náð sérstökum árangri."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.