Fotbolti.net
27.11.26 - 21:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Jákvæðar fréttir af Munoz

Jákvæðar fréttir af Munoz
Canon

Mynd: EPA

Victor Munoz, leikmaður Liverpool, virtist meiðast illa í 3-0 sigri liðsins gegn Club Brugge í Meistaradeildinni á dögunum.

Hann þurfti að fara af velli undir lok fyrri hálfleiks eftir að hafa meiðst á hné þegar hann lenti í samstuði við Jorne Spileers í vítateig belgíska liðsins.
Andoni Iraola færði jákvæðar fréttir af honum á fréttamannafundi fyrir grannaslaginn gegn Everton á sunnudaginn.

„Góðar fréttir eftir nánari skoðun. Hann æfði ekki í dag en vill reyna á morgun. Ég get ekkert sagt núna," sagði Iraola.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.