Fotbolti.net
28.02.21 - 15:34
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Byrjunarlið Chelsea og Man Utd: Martial og Werner byrja ekki

Daniel James er í byrjunarliði Man Utd.

Daniel James er í byrjunarliði Man Utd.

Canon

Mynd: Getty Images

Það er stórleikur framundan í ensku úrvalsdeildinni klukkan 16:30. Chelsea tekur á móti Manchester United.

Chelsea hefur ekki enn tapað frá því að Thomas Tuchel tók við liðinu. Lundúnaliðið vann 0-1 útisigur á Atletico Madrid í Meistaradeildinni í síðustu viku og kemur liðið inn í þennan leik með fullt sjálfstraust.
Chelsea er í fimmta sæti deildarinnar en Man Utd situr í öðru sæti, þrettán stigum á eftir toppliði Manchester City.

Daniel James hefur verið að spila vel að undanförnu og hann byrjar í dag með Mason Greenwood og Marcus Rashford í fremstu víglínu. Anthony Martial byrjar á bekknum. Annars er liðið eins og búast mátti við hjá Man Utd.

Hjá Chelsea eru tvær breytingar á byrjunarliðinu frá sigrinum gegn Atletico. Hakim Ziyech og N'Golo Kante koma inn í byrjunarliðið fyrir Jorginho og Timo Werner. Bæði Werner og Kai Havertz byrja á bekknum.

Byrjunarlið Chelsea: Mendy, Azpilicueta, Rudiger, Christensen, Chilwell, Mount, Kante, Kovacic, Ziyech, Giroud, Hudson-Odoi.
(Varamenn: Kepa, Zouma, James, Emerson, Alonso, Havertz, Jorginho, Pulisic, Werner)

Byrjunarlið Man Utd: De Gea, Wan-Bissaka, Lindelof, Maguire, Shaw, McTominay, Fred, Fernandes, James, Greenwood, Rashford.
(Varamenn: Henderson, Bailly, Williams, Tuanzebe, Telles, Van de Beek, Matic, Diallo, Martial)

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City9+1021
2Arsenal8+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool8+315
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9-112
9Leeds9+111
10Hull City9+111
11Newcastle8-211
12Aston Villa8-311
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Coventry9-79
16Fulham8-28
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-117
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.