31.10.26 - 15:44
Brynjar Ingi Erluson
Carrick býst við að stýra næsta leik - „Hlutirnir ekki að falla með okkur“

Michael Carrick

Mynd: EPA

Martínez sá rautt

Mynd: EPA

Carrick býst við að vera áfram

Mynd: EPA

Michael Carrick

Mynd: EPA
Michael Carrick, stjóri Manchester United, var ánægður með ýmislegt í frammistöðu sinna manna þrátt fyrir 2-0 tap gegn Chelsea á Stamford Bridge í dag. Hann býst þá við því að stýra United í næsta leik.

TENGT EFNI
England: Chelsea afgreiddi Man Utd í síðari hálfleik - Martínez brást liðsfélögunum
United-liðið svaraði frammistöðunni í 3-0 tapinu gegn Bournemouth ágætlega og fékk mörg frábær færi til að skora í fyrri hálfleiknum í dag.
Það bara datt ekkert með þeim og í þeim síðari tókst Chelsea að afgreiða þá með marki Morgan Rogers og vítaspyrnumarki Cole Palmer.
„Við vorum mun betur inni í leiknum í fyrri hálfleik og okkur fannst við eiga skilið að komast yfir. Í þeim síðari rann leikurinn hins vegar úr greipum okkar. Við mættum bara ekki til leiks.“
„Fyrsta markið var mjög slæmt að fá á sig og eftir það náðum við aldrei að vinna okkur aftur inn í leikinn eins og við gerðum í fyrri hálfleik.“
„Að okkar mati var þetta einfaldlega alls ekki gott mark að fá á sig,“ sagði Carrick.
Lisandro Martínez sá sitt annað gula spjald er hann keyrði inn í Wesley Fofana í teignum eftir hornspyrnu. Heimskulegt brot hjá Martínez og náði Chelsea að ganga frá leiknum.
„Þetta hafði auðvitað gríðarleg áhrif á leikinn. Þetta var risastórt augnablik og ég held að það sé nokkuð augljóst.“
Einnig talaði hann um frábært skot Bryan Mbeumo sem hafnaði í þverslánni undir lokin.
„Þetta lýsir eiginlega leiknum ágætlega. Bryan átti frábært skot og ef boltinn hefði farið inn hefðum við komist aftur inn í leikinn. Maður vill auðvitað að leikmennirnir skori mörk og skapi sér færi. Bryan er einn þeirra sem endurspeglar vel hvernig leikurinn þróaðist.“
„Ég var ánægður með liðið í fyrri hálfleik, sérstaklega frammistöðu einstakra leikmanna. Aginn var til staðar, allir sinntu sínum hlutverkum og gæðin í spilamennskunni voru góð,“ sagði Carrick.
„Það voru miklar tilfinningar í gangi. Við erum stórt fótboltafélag og viljum vinna leiki. Stuðningsmennirnir mæta, leggja mikið á sig og borga háar fjárhæðir til að horfa á okkur spila. Það sást í þessum leik að strákarnir voru með rétta hugarfarið, en hlutirnir féllu einfaldlega ekki með okkur.“
„Það virðist allt vera á móti okkur og það er vægt til orða tekið. Þetta gerðist allt mjög hratt og tilfinningarnar eru miklar núna. Við verðum hins vegar að horfa fram á veginn og taka með okkur það jákvæða úr leiknum. Það var margt mjög gott í okkar frammistöðu, sérstaklega í fyrri hálfleik.“
Carrick var einnig spurður hvort hann byggist við að stýra liðinu í næsta leik og var svarið stutt og afdráttarlaust.
„Já,“ sagði Carrick í lokin.