Uggi hefur verið varamarkvörður fyrir Aron Snæ en hann greindist með brjósklos og er því ekki til taks.
Íslandsmeistarar Víkings eru aðeins með einn markvörð til taks. Félagið hefur óskað eftir undanþágu frá KSÍ eftir að Ingvar Jónsson greindist með krabbamein í upphafi mánaðar.
Þá hefur Uggi Jóhann Auðunsson hefur verið varamarkvörður fyrir Aron Snæ Friðriksson en Uggi er með brjósklos og því ekki til taks.
Miðjumaðurinn Viktor Örlygur Andrason hefur verið eins konar varamarkvörður liðsins í síðustu leikjum. Sölvi var spurður út í markvarðarstöðuna í viðtali eftir leik liðsins gegn Stjörnunni á þriðjudag.
Þá hefur Uggi Jóhann Auðunsson hefur verið varamarkvörður fyrir Aron Snæ Friðriksson en Uggi er með brjósklos og því ekki til taks.
Miðjumaðurinn Viktor Örlygur Andrason hefur verið eins konar varamarkvörður liðsins í síðustu leikjum. Sölvi var spurður út í markvarðarstöðuna í viðtali eftir leik liðsins gegn Stjörnunni á þriðjudag.
„Það hefði endað þannig í síðustu tveimur leikjum að hann hefði þurft að stíga inn í markið. Þannig að staðan er ekki góð. Ef Aron meiðist þá erum við illa settir með útileikmann í marki. Það lofar ekki góðu. En ef það gerist þá verðum við að treysta á Viktor.“
Hvers vegna Viktor?
„Hann spilaði einhverja leiki í yngri flokkum og hefur spilað leiki í marki. Hann hefur þá einhverja reynslu. En eins og ég segi Kári þarf að spíta í lófana,“ sagði Sölvi léttur og vísaði þar í Kára Árnason, yfirmann fótboltamála hjá Víkingi.
Áður verið varamarkvörður
Árið 2020 voru Víkingar ekki með neinn varamarkvörð á ákveðnum tímapunkti. Þá lýsti Þórður Ingason, þáverandi markvörður liðsins, í samtali við Morgunblaðið því yfir að Viktor væri varamarkvörðurinn.
„Já ef sú staða hefði komið upp að ég hefði farið út af [vegna meiðsla eða brottvísunar] þá hefði Viktor Örlygur Andrason farið í markið. Hann er flottur á milli stanganna og seigur þótt hann sé kannski ekki dóminerandi í teignum," sagði Þórður.
Költhetja hjá Football Manager spilurum
Viktor vakti mikla athygli fyrir fjórum árum þegar eftirtektarsamir Football Manager spilarar tóku eftir því hversu fjölhæfur Viktor er.
Samkvæmt tölvuleiknum getur Viktor leyst allar stöður á vellinum nema markvarðarstöðuna.
Sjálfur birti hann færslu á X þar sem hann kynnti sjálfan sig fyrir spilurum sem fékk gífurlega athygli og yfir 15 þúsund læk.
Umræðan um Viktor var orðin það stór að opinber Twitter-reikningur Football Manager blandaði sér í hana. „Viktor, settu hanskana aftur á þig og þá munum við tala saman.“
Þá gerði Viktor sér lítið fyrir og birti mynd af sér haldandi á markmannshönskum fyrir æfingu Víkings.
“Let me introduce myself” ???????? https://t.co/ROEwNYYLTR pic.twitter.com/YfQJwjMCmW
— Viktor Örlygur Andrason (@ViktorAndrason) February 15, 2022
Gloves are on for todays training pic.twitter.com/2abVdFSDCz
— Viktor Örlygur Andrason (@ViktorAndrason) February 16, 2022




