Fotbolti.net
28.06.26 - 14:00
Brynjar Ingi Erluson

Henderson í sögubækurnar

Henderson í sögubækurnar
Canon

Mynd: EPA

Jordan Henderson skrifaði nafn sitt í sögubækur enska landsliðsins þegar hann kom inn af bekknum í 2-0 sigri Englands á Panama í lokaumferð riðlakeppninnar á heimsmeistaramótinu í gær.
Þessi 36 ára gamli miðjumaður spilaði sinn fyrsta leik á heimsmeistaramótinu þegar hann kom inn á fyrir Elliot Anderson á 84. mínútu.

Þar skráði hann sig á spjöld sögunnar, því hann varð fyrsti Englendingurinn til að spila á fjórum heimsmeistaramótum og sjö stórmótum.

„Tíminn flýgur, er það ekki? Þetta er brjálæði. Ég hef alltaf sagt hversu mikill heiður það er að spila fyrir þjóð mína, allt frá því ég þreytti frumraun mína.“

„Að geta enn gert það er draumur að rætast. Að fá að koma inn og hlaupa um eins og lítill strákur þegar ég fæ mínútur er jafn þýðingarmikið núna og þegar ég spilaði fyrsta leikinn. Það eina sem ég hef alltaf reynt að gera er að gefa allt mitt fyrir landið, liðsfélagana og gera þjóðina stolta,“ sagði Henderson, sem lék jafnframt sinn 91. landsleik í ensku treyjunni.

Þetta er fjórða heimsmeistaramótið sem Henderson spilar á en hann hefur einnig tekið þátt á þremur Evrópumótum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.