Fotbolti.net
28.06.26 - 10:40
Brynjar Ingi Erluson

Maður dagsins á HM - Nú átti hann þetta svo sannarlega skilið

Jude Bellingham er maður dagsins

Jude Bellingham er maður dagsins

Canon

Mynd: EPA

Leikmaður dagsins
Orkusalan og Fótbolti.net velja mann dagsins á HM á hverjum degi á meðan mótið er í gangi í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.
Bellingham ósammála FIFA - „Ég á þetta ekki skilið“
TENGT EFNI

Bellingham ósammála FIFA - „Ég á þetta ekki skilið“

Jude Bellingham er maður dagsins á HM, og verðskuldaði það svo sannarlega, eftir að hafa skorað og lagt upp í 2-0 sigri Englands á Panama. Sigurinn tryggði Englendingum toppsætið í riðlinum.

Átti þetta ekki skilið síðast

Bellingham var valinn maður leiksins í annað sinn á mótinu fyrir frammistöðuna gegn Panama, en það vakti athygli að eftir markalaust jafntefli gegn Gana sagðist hann ekki hafa átt verðlaunin skilið.

Hann sagði að einhver leikmaður Gana hefði frekar átt að fá þau en hann.

Það var líklega rétt mat hjá honum, en gegn Panama átti hann viðurkenninguna svo sannarlega skilið.

Bellingham átti laglega fyrirgjöf á Harry Kane, sem stangaði boltann í netið og varð þar með markahæsti leikmaður Englands í sögu heimsmeistaramótsins. Kane tók þar fram úr Gary Lineker.

Bellingham skoraði svo sjálfur þegar hann komst fram fyrir varnarmann í hornspyrnu og potaði boltanum í netið við nærstöng.

Englendingurinn skoraði einnig í fyrstu umferðinni gegn Króatíu og hefur því komið að þremur mörkum á mótinu.

Bætti met Wayne Rooney

Bellingham varð um leið yngsti leikmaðurinn til að spila 50 landsleiki fyrir England. Hann fagnar 23 ára afmæli sínu á morgun en Wayne Rooney var 23 ára og 159 daga gamall þegar hann lék sinn 50. landsleik.

Flott svar hjá Bellingham og Englendingum, sem mæta Kongó í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins. Leikurinn fer fram á Mercedes-Benz-leikvanginum í Atlanta og hefst klukkan 16:00 á miðvikudag.

Aðrir sem komu til greina sem leikmaður dagsins voru þeir Riyad Mahrez hjá Alsír sem skoraði tvö mörk í 3-3 jafnteflinu gegn Austurríki, Yoane Wissa sem gerði einnig tvö mörk fyrir Kongó, Giovani Lo Celso, Petar Sucic og Diogo Costa.
Maður dagsins á HM - Nú átti hann þetta svo sannarlega skilið
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.