Newcastle ætlar að bjóða fyrirliðanum nýjan samning

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Newcastle United ætlar að bjóða brasilíska miðjumanninum Bruno Guimaraes nýjan samning með hærri launum, en þetta kemur fram í Sun.

TENGT EFNI
Arsenal undirbýr endurbætt tilboð í Guimaraes
Brasilíski landsliðsmaðurinn er þegar launahæsti leikmaður Newcastle með um 160 þúsund pund í vikulaun, en félagið er reiðubúið að bjóða honum nýjan samning þar sem hann myndi þéna um 200 þúsund pund á viku.
Sky Sports hefur greint frá áhuga Arsenal á Guimaraes en Englandsmeistararnir hafa rætt við föruneyti hans. Félagið hefur þó ekki sett sig formlega í samband við Newcastle og óformlegu tilboði Arsenal var hafnað í gegnum milliliði.
Afstaða Newcastle er skýr. Félagið vill ekki selja Guimaraes, sem hefur verið fyrirliði liðsins frá 2024. Innan félagsins er litið á hann sem ósnertanlegan en hann er samningsbundinn Newcastle til ársins 2028.
Guimaraes er einn af mörgum miðjumönnum sem Arsenal hefur verið að skoða í sumar.
Á sama tíma hefur Newcastle áhuga á Felix Nmecha, miðjumanni Borussia Dortmund og þýska landsliðsins. Hann gæti komið í stað Sandro Tonali, sem hefur verið orðaður við Manchester-liðin og Tottenham.