Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   lau 28. nóvember 2020 13:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ceballos tjáir sig um lætin milli sín og Luiz á æfingu
Mynd: Getty Images
Fyrir rúmri viku varð uppákoma á æfingu Arsenal og fjölmiðlar greindu frá því að Dani Ceballos blóðgastist eftir viðskipti við David Luiz á æfingunni.

Ceballos tjáði sig um uppákomuna fyrir helgina, staðfesti að hún átti sér stað, og lítur á björtu hliðarnar.

„Ég ætla ekki að segja að það hafi ekkert gerst," sagði Ceballos við The Sun.

„Þetta var ekki til fyrirmyndar en það er jákvætt að það er líf í Arsenal og hlutirnir skipta leikmenn máli. Við erum tveir fótboltamenn með mjög svipaða leiðtogahæfileika og svona hlutir geta gerst. Við ræddum hlutina eftir æfingu og núna verðum við að læra af þessu svo þetta gerist ekki aftur."
Athugasemdir
banner
banner
banner