Fotbolti.net
29.03.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Æfingaleikir: Portúgal gerði jafntefli við Mexíkó án Ronaldo

Æfingaleikir: Portúgal gerði jafntefli við Mexíkó án Ronaldo
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Ísland gerði jafntefli gegn Kanada í æfingaleik í gær en það fóru fleiri leikir fram í gær og í nótt.
Senne Lammens, markvörður Man Utd, spilaði annan landsleik sinn fyrir Belgíu í gær þegar liðið vann 5-2 stórsigur á Bandaríkjunum. Leikurinn fór fram á Mercedes-Benz vellinum í Atlanta en það verður spilað á vellinum á HM í sumar.

Nicolas Jackson, sem er á láni hjá Bayern frá Chelsea og Ismaila Sarr, leikmaður Crystal Palace, skoruðu mörk Senegal gegn Perú.

Gunnar Vatnhamar, leikmaður Víkings, var í byrjunarliði Færeyja sem vann San Marino. Þá vann Fílabeinsströndin öruggan sigur á Suður Kóreu og Ungverjaland og Japan fögnuðu sigrum.

Cristiano Ronaldo var ekki með portúgalska liðinu þegar liðið gerði markalaust jafntefli gegn Mexíkó. Það vantaði hins vegar ekki stjörnurnar í portúgalska liðið en Bruno Fernandes bar fyrirliðabandið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.