Greint var frá því í byrjun maí að íslensku landsliðin og félög í Pepsi Max deildunum fái aðgang að Wyscout kerfinu næstu árin. Nú hefur KSÍ staðfest að félög í 1. deild karla fá einnig aðgang næstu þrjú árin.
Í Wyscout kerfinu eru leikmenn leikgreindir og geta þjálfarar nýtt upplýsingar þaðan til að bæta ýmsa þætti í leik sinna liða og til að undirbúa sig betur fyrir næstu andstæðinga.
Af vefsíðu KSÍ:
Samningur þessi mun gera félögum/þjálfurum kleift að skima (scouting), leikgreina og skoða alla leiki á Íslandi. Einnig eru möguleiki að skoða skýrslur af eigin leikjum, leikmönnum og andstæðingum.
Þessi samningur mun bæta vinnuumhverfi félaganna mikið og hjálpa þjálfurum að vinna hraðar í deild þar sem mikið er um ferðalög og stutt er á milli leikja.
Í ljósi þess að enginn sjónvarpssamningur er í gildi við 1. deild karla þá er það er á ábyrgð hvers liðs fyrir sig að taka upp leikina og koma þeim á Wyscout platformið.
Athugasemdir