Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 29. júní 2020 13:30
Magnús Már Einarsson
Bruce þreyttur á óvissunni með eignarhaldið
Steve Bruce.
Steve Bruce.
Mynd: Getty Images
Steve Bruce, stjóri Newcastle, vill fara að fá á hreint hvort að fjárfestar frá Sádi-Arabíu muni kaupa félagið af Mike Ashley.

Fjárfestingahópurinn mun kaupa 80% hlut í Newcastle á 300 milljónr punda ef að þeir sem leiða hópinn standast kröfur ensku úrvalsdeildarinnar.

Bruce er orðinn þreyttur á biðinni en hann tjáði sig eftir 2-0 tap gegn Manchester City í enska bikarnum í gær.

„Ég tel að allir þurfi að fá þetta á hreint. Mér skilst að enska úrvalsdeildin sé að tefja samningaviðræður og við þurfum að fá ákvörðun fyrr eða síðar. Þetta er ekki hollt fyrir neinn."

„Við eigum annan leik á miðvikudaginn og þar eigum við frábæra möguleika á að klifra upp töfluna. Við getum ekki notað þetta sem afsökun en við þurfum að fá þetta á hreint á einn eða annan hátt."

Athugasemdir
banner
banner