Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 30. júní 2020 11:30
Innkastið
Fær að fara næst í klippingu eftir að hann skorar
Greiðslan hjá Brynjólfi gegn Fylki í þarsíðustu umferð.
Greiðslan hjá Brynjólfi gegn Fylki í þarsíðustu umferð.
Mynd: Helgi Viðar Hilmarsson
„Væri ekki fínt hja Brynjolfi að fara setja boltann svona einu sinni i markið, 3 mismunandi hárgreiðslur 0 mörk," skrifaði Aron Elís Þrándarson, leikmaður OB, á Twitter í gærkvöldi.

Aron talaði þar um Brynjólf Andersen Willumsson, leikmann Breiðabliks, en hann mætti með nýja hárgreiðslu í leik liðsins gegn Fjölni í gærkvöldi.

Brynjólfur hefur mætt með nýja hárgreiðslu í öllum umferðunum hingað til í Pepsi Max-deildinni. Brynjólfur hefur fiskað víti og átt stoðsendingu í sumar en hann á ennþá eftir að skora.

„Ég hleypi Brynjólfi næst í klippingu þegar hann skorar," sagði Gunnar Birgisson í Innkastinu í gær.




Innkastið - Óttar og vafasamur boltakrakki stálu senunni
Athugasemdir
banner
banner
banner