Ólafur Kristjánsson, þjálfari FH, var í viðtali eftir leikinn gegn Víkingi R. í gærkvöldi spurður út í fjarveru Baldurs Sigurðssonar og Guðmanns Þórissonar. Óli segir ástæðuna vera tognun og höfuðhögg en FH-ingar voru í vandræðum með miðvarðarstöðuna í gær. Víkingur vann leikinn 4-1.
Pétur Viðarsson fór meiddur af velli og fór miðjumaðurinn Þórir Jóhann Helgason inn í vörnina og Atli Guðnason kom inn á.
Pétur Viðarsson fór meiddur af velli og fór miðjumaðurinn Þórir Jóhann Helgason inn í vörnina og Atli Guðnason kom inn á.
„Þeir [Guðmann og Baldur] voru ekki með í kvöld. Við sem vorum hér þurfum að horfast í augu við þessi úrslit og hysja upp um okkur brækurnar."
Óli var spurður út í möguleg leikmannakaup fyrir lok gluggans en hann lokar í kvöld.
„Nei ég á ekki von á því. Verðum bara að halda áfram. Við fengum skell, verðskuldaðan skell, á móti góðu Víkingsliði. Þeir sýndu sitt rétta andlit og við þurfum að sleikja sárin og mæta ferskari gegn Breiðablik eftir níu daga," sagði Óli í gærkvöldi.
Viðtalið í heild sinni má sjá hér að neðan.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir