Fotbolti.net
30.06.20 - 12:01
Elvar Geir Magnússon

Útgöngubann hert í Leicester - Leikið á hlutlausum velli?

King Power leikvangurinn, heimavöllur Leicester.

King Power leikvangurinn, heimavöllur Leicester.

Canon

Mynd: Getty Images

Borgaryfirvöld í Leicester hafa sett á hertara útgöngubann næstu tvær vikur þar sem mikill vöxtur hefur orðið í kórónaveirusmitum í borginni.

Rætt er um hvort fresta þurfi leikjum hjá fótboltaliði Leicester eða færa þá á hlutlausa velli.
Richard Masters, framkvæmdastjóri ensku úrvalsdeildarinnar, segir að áætlanir hafi verið tilbúnar ef svona stæði kæmi upp.

Leicester heimsækir Everton á morgun en liðið á að leika heimaleik gegn Crystal Palace á laugardag.

Heilbrigðisráðherrann Matt Hancock segir að leikurinn muni fara fram en vill ekki gefa upp hvort leikið verði á hlutlausum velli.

Leicester er í þriðja sæti í ensku úrvalsdeildinni.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.