Liverpool hefur ekki tapað í 31 leik í röð í ensku úrvalsdeildinni og er það jöfnun á félagsmeti.
Liverpool vann 2-1 sigur á Brighton í dag þrátt fyrir að markvörður liðsins, Alisson, hefði fengið að líta rauða spjaldið á 76. mínútu.
Liverpool er á toppnum með 11 stiga forskot á næstu lið, en Leicester getur minnkað forskotið í átta stig á morgun.
Opta segir frá því að Liverpool hafi í dag jafnað félagsmet sitt með því að fara í gegnum 31. deildarleikinn án þess að tapa. Það gerðist síðast hjá Liverpool 1987-88.
Liverpool getur bætt metið á miðvikudaginn. Þá taka lærisveinar Jurgen Klopp á móti Everton í grannaslag.
31 - @LFC have equalled their longest ever unbeaten run in the top-flight, also going 31 games without defeat between May 1987-March 1988. Bulldozer. #LIVBHA
— OptaJoe (@OptaJoe) November 30, 2019
Athugasemdir