31.08.26 - 18:41
Ívan Guðjón Baldursson
Man City nær samkomulagi um Iliman Ndiaye

Mynd: Everton

Mynd: Everton
Manchester City er búið að ná samkomulagi við Everton um kaup á Iliman Ndiaye fyrir 65 milljónir punda.
Ndiaye er 26 ára kantmaður sem kom með beinum hætti að 9 mörkum í 32 úrvalsdeildarleikjum á síðustu leiktíð. Hann var meðal allra bestu leikmanna Everton á tímabilinu og var orðaður við ýmis félagslið í sumar.
Man City þarf nýja leikmenn á afar annríku sumri þar sem félagið missti þjálfarann sinn og marga leikmenn.
Fabrizio Romano hefur sett „here we go!" stimpilinn sinn á félagaskiptin og segir að Ndiaye sé þegar búinn að ná samkomulagi við City um launamál.
Ndiaye fer í læknisskoðun og semur við City fyrir gluggalok.
Everton er á sama tíma að reyna að kaupa Jack Grealish frá Man City. Aston Villa hefur þó einnig áhuga á Grealish.