Fotbolti.net
31.10.26 - 22:18
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Frans vill spila meira og félög hafa haft samband

Hefði viljað spila meira í sumar.

Hefði viljað spila meira í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Frans Elvarsson kvaddi Keflavík í vikunni eftir sextán ára hjá félaginu. Frans er uppalinn á Höfn en kom til Keflavíkur frá grönnunum í Njarðvík.

Frans segir í samtali við Fótbolta.net að hann vilji spila fótbolta áfram og að félög hafi sett sig í samband við sig.

Miðjumaðurinn reynslumikli var spurður hvers vegna tímanum hjá Keflavík væri lokið.
Frans segir skilið við Keflavík eftir sextán tímabil
TENGT EFNI

Frans segir skilið við Keflavík eftir sextán tímabil

„Það er í rauninni það að það blundar í mér leikmaður ennþá. Ég er heill, þetta er gaman og ég upplifi að getan sé enn til staðar miðað við hvernig maður hefur verið á æfingum, þó maður finni að maður sé ekki 22 ára ennþá," segir Frans sem var spilandi styrktarþjálfari og fyrirliði liðsins.

„Ég var ekki í stóru hlutverki á þessu tímabili og hefði líklegast beðið um að fara í sumarglugganum en mér fannst líka ógeðslega skemmtilegt að vera styrkþjálfari og hafa rödd innan hópsins. þó ég viti ekkert hvort það var hlustað á mann eða hvort það hafði áhrif, þá ímynda ég mér að mínar aðferðir í styrkþjálfun og endurgjöf til leikmanna hafi haft einhver áhrif á gott gengi í sumar."

Ósáttur við hlutverkið
Frans segir að það hafi verið togstreita að fara, hann vildi spila meira en naut þess að vera styrktarþjálfari liðsins.

,Ég var ekki sáttur með hlutverkið mitt í sumar - ég tognaði á liðbandi í hnénu rétt fyrir mót og missti af fyrstu 3-4 leikjunum og var alltaf að bíða eftir því að fá koma meir inn í liðið. En síðan kom það tækifæri aldrei almennilega og ég var ósáttur með það og lenti í smá lærðu hjálparleysi, þegar maður leggur mikið í æfingar og fær síðan ekki tækifærið getur það verið erfitt."

„Eins og ég segi þá hefði ég líklegast beðið um að fara í sumarglugganum en það var togstreita að fara því mér fannst svo gaman í styrkþjálfarahlutverkinu."

„En að sama skapi sýni ég því fullan skilning að liðið var að spila vel og ekki endilega eftirspurn eftir að koma einum 36 ára „unc" inn í liðið."

„Halli og Bói settu saman frábært lið en ég hefði bara viljað vera í stærra hlutverki í því liði. Það var siðan gott að fá aðeins fleiri mínútur núna eftir skiptingu og enda þetta með að finna að maður var ennþá samkeppnishæfur í efstu deild á íslandi, á móti bestu sex liðunum."


Vill spila áfram
Hvað tekur við?

„Eins og ég segi þá blundar í mér að vera leikmaður áfram. Þótt maður hafi líka hugsað um hvort þetta væri mögulega komið gott þá finnst mér erfitt að hætta eftir svona tímabil þar sem mér finnst ég eiga inni."

„Ég hef fengið skilaboð frá um fimm liðum og ætla að skoða hvað gæti hentað best - ákjósanlegast væri að vera leikmaður og styrkþjálfari því mig langar að halda áfram að þróa mig á því sviði,"
segir Frans. Lengra viðtal við hann verður birt á morgun.

Frans er 36 ára og kom í Keflavík fyrir tímabilið 2011. Hann er fyrrum unglingalandsliðsmaður og á samkvæmt KSÍ að baki 531 meistaraflokksleik. Á liðnu tímabili kom hann við sögu í átta leikjum þegar Keflavík kom mjög mörgum á óvart og endaði í efri hluta Bestu deildarinnar.

Í Útvarpsþættinum Fótbolta.net í dag var hann orðaður við endurkomu til Njarðvíkur.
Leiddi liðið upp úr Lengjudeildinni í fyrra.

Leiddi liðið upp úr Lengjudeildinni í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Frans vill spila meira og félög hafa haft samband
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

'Ekki endilega eftirspurn eftir að koma einum 36 ára ,,unc" inn í liðið'

'Ekki endilega eftirspurn eftir að koma einum 36 ára ,,unc" inn í liðið'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Halli og Bói gerðu mjög góða hluti með lið Keflavíkur.

Halli og Bói gerðu mjög góða hluti með lið Keflavíkur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjög gott tímabil hjá Keflavík.

Mjög gott tímabil hjá Keflavík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.