31.10.26 - 20:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Njarðvík nýtti sér uppsagnarákvæði í samningi Guy Smit

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Guy Smit er farinn frá Njarðvík eftir að félagið nýtti sér uppsagnarákvæði í isamningi hans.
Guy er þrítugur Hollendingur en hann gekk til liðs við Njarðvík frá Vestra fyrir tímabilið í sumar. Hann kom fyrst hingað til lands árið 2020 til að spila með Leikni. Hann hefur einnig spilað með Val, ÍBV og KR.

Hann spilaði 31 leik í sumar og þar af 24 leiki í Lengjudeildinni. Hann hélt tíu sinnum hreinu.
Njarðvík hafnaði í 5. sæti Lengjudeildarinnar í sumar og fór í umspil um sæti í Bestu deildinni. Þar tapaði liðið gegn Þrótti í undanúrslitum.