Haddi: Margt sem er bara eitthvað bull
„Þetta er bara erfitt tap. Mér fannst frammistaðan fín, bara jafn leikur og tölfræðin styður það. En við því miður bara náum ekki að skora. Grímsi fær dauðafæri í fyrri hálfleik, svo sleppur Jakob Héðinn einn í gegn og markmaðurinn þeirra ver, svo held ég að Adam eigi góðan séns á að skora. Þannig að við fáum færin, en því miður fer boltinn ekki inn og það hefur ekki gerst síðustu þrjá leiki. Svo er bara sárt að fá á sig mark úr horni, við vissum hvað þeir myndu gera í hornum og búnir að undirbúa okkur vel en þarna vorum við búnir að gera smá skiptingar. Leikmenn, eins og Biggi, sem eru sterkir í föstum leikatriðum komnir útaf og því miður þá bara skora þeir bara á nærsvæðinu, þar sem að þeir eru sterkir,'' sagði svekktur Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, eftir 0-1 tap á heimavelli í fallbaráttuslag gegn FH í kvöld.